þungunarrof.
Herra forseti. Við ræðum hér við 3. umr. frumvarp til laga um þungunarrof sem er, eins og hv. þingmönnum er kunnugt um, seinni hlutinn af breytingum á lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Afar lýsandi nafn eða þannig á lögum. Við erum sem sagt búin að samþykkja, eins og þingmönnum er kunnugt um, frumvarp um ófrjósemisaðgerðir sem var gert hér fyrr í dag.
Eðli máls samkvæmt hafa verið ítarlegar umræður um mál þetta. Það eru skiptar skoðanir, ekki bara hér í þingsal heldur líka í samfélaginu. Ég hef lagt málið upp þannig að við erum að taka tímamótaákvörðun um sjálfsákvörðunarrétt kvenna og þreytist í raun ekki á að segja það. Það skiptir nefnilega gríðarlega miklu máli að við horfumst í augu við það að þegar lögin voru sett á sínum tíma, árið 1975, var kvennahreyfingin í landinu ekki á þeim stað sem löggjöfinni var, enda var Alþingi þá samsett allt öðruvísi en það er í dag.
Kvennahreyfingin í landinu barðist fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna og núna, 44 árum síðar, ef ég reikna rétt, erum við komin þar að við sem löggjafarsamkunda erum tilbúin til að taka undir þá kröfu með kvennahreyfingunni. Núverandi staða í málinu er sú að þrátt fyrir ákvæði 10. gr. núgildandi laga um að fóstureyðing skuli að jafnaði vera framkvæmd fyrir 12. viku eða ekki seinna en 16. viku, þá er framkvæmd laganna túlkuð þannig, og það kom raunar fram fyrir hv. velferðarnefnd, að þungunarrof er framkvæmt á Íslandi upp að 22. viku meðgöngu.
Sá vikufjöldi er ekki valinn af tilviljun heldur m.a. vegna þess að afstaða Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er á þá lund að ef möguleiki fósturs til sjálfstæðs lífs utan líkama konu er orðinn það mikill eftir 22. viku sé réttlætanlegt að draga strik þar. Við vitum síðan að samfélög allt í kringum okkur hafa tekið aðra afstöðu. Sum lönd hafa jafnvel engin tímatakmörk á hvenær þungunarrof er, en við erum ekki þar.
Hæstv. heilbrigðisráðherra lagði fram frumvarp um 22. viku sem tímamörkin. Eins og hefur komið fram í umræðunni hafa menn verið að höggva á milli 18., 20. og 22. viku. Við gerðum það í hv. velferðarnefnd. Við fengum gesti og ræddum þetta, væntanlega í þingflokkunum líka, og við aðra þingmenn á göngum þingsins o.s.frv. En það er bara þannig að ef við ætlum að svara þessum tveimur þáttum, þ.e. annars vegar því að taka fötlunarfordóma út úr lögunum og hins vegar því sem er a.m.k. jafn mikilvægt, þ.e. að virða sjálfsákvörðunarrétt kvenna, þá er ekki að mínu viti hægt að finna leiðir til þess að skrifa inn einhverjar undanþágur á milli 18 og 22 viku öðruvísi en að koma aftur inn með fötlunarfordómana, sem m.a. samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks talar á móti og samtök fatlaðs fólks tala líka á móti því.
Það er einhvern veginn ekki hægt að komast að neinum sannleika þarna og meira að segja heilbrigðismenntað fólk, eins og ég er sjálfur, sér ekki leiðina til að skrifa þessar undanþágur inn. Af því að við myndum alltaf lenda í þeim aðstæðum — bíddu, já, það á að taka þessa undanþágu en ekki hina. Á hvaða forsendum er það? Fyrr en varir erum við lent í erfiðleikum.
Eftirfarandi kemur fram í 4. gr. frumvarpsins, þ.e. með frávikin eftir 22. viku, með leyfi forseta:
„Einungis er heimilt að framkvæma þungunarrof eftir lok 22. viku þungunar ef lífi þungaðrar konu er stefnt í hættu við áframhaldandi þungun eða ef fóstur telst ekki lífvænlegt til frambúðar. Staðfesting tveggja lækna skal liggja fyrir þess efnis að fóstur teljist ekki lífvænlegt til frambúðar.“
Þetta er í rauninni sá umbúnaður sem hefði verið hægt að skrifa inn, að mínu viti. Hefði verið hægt að hafa þetta við 18. viku? Það hefði í sjálfu sér verið hægt, en þá hefðum við í raun verið að takmarka rétt kvenna miðað við þá framkvæmd laganna sem er í dag. Mér hefði ekki þótt vera góður bragur á því að fara þá leið.
Við skulum átta okkur á því að samfélag okkar er mikið breytt frá því sem var fyrir 40 árum. Í dag lifum við í samfélagi margbreytileika. Það er ekki lengur þannig að 95% þjóðarinnar tilheyri hinni evangelísku lútersku kirkju.
Stórir hlutar þjóðarinnar og þeirra íbúa sem hér búa eru með allt annan bakgrunn en þjóðin var þá með. Fólk er af mismunandi uppruna, aðhyllist mismunandi trúarbrögð o.s.frv. Það er engin leið fyrir okkur þingmenn á Alþingi Íslendinga að setja okkur endilega í spor allra þessara hópa eða alls þess fólks og margbreytileikans. Það er ekki einu sinni víst að við vitum af öllum margbreytileikanum. Ég efast raunar um það. Og auðvitað eru trúarbrögð ríkur þáttur í fari margra og hafa mikil áhrif á líf margra en það trompar samt ekki sjálfsákvörðunarrétt kvenna. Hann verður alltaf að vera lykilatriðið, að mínu mati, herra forseti.
Það eru nokkur atriði, kannski má segja sirka tvö atriði sem ég vil koma aðeins inn á. Það er 5. gr. frumvarpsins sem hefur fengið nokkra umræðu, þó ekki mikla, um heimildir til þungunarrofs hjá ólögráða stúlkum. Ég vil beina því til þingmannanefndar um réttindi barna eða um málefni barna, sem nú er að störfum, að reyna með einhverju móti að skoða það með hvaða hætti væri hægt að styðja betur við stúlkur sem undirgangast þungunarrof. Vegna þess að ekki er sjálfgefið að þær geti leitað stuðnings hjá foreldrum sínum. Staða foreldranna eða staða fjölskyldunnar kann að vera þannig að stúlkan geti ekki leitað stuðnings þar.
Kveðið er á um það í greininni að þær stúlkur eigi rétt á fræðslu og ráðgjöf um getnaðarvarnir, en það kann að vera að þær þurfi stuðning umfram það og kann að vera skynsamlegast að ákvæði um slíkt væru í t.d. nýjum barnaverndarlögum eða einhverjum slíkum lagabálki. Þess vegna vísa ég því til þessarar ágætu nefndar að það verði skoðað sérstaklega hvort hægt sé að búa um það í þeim lagabálki.
Það er ákveðinn ómöguleiki sem ég vil meina að komi fram í breytingartillögunum annars vegar um 18 vikur og hins vegar um 20 vikur sem hafa verið nokkuð til umræðu hér. 20. viku strikið — ég efast ekki um að sú breytingartillaga sé vel meint og hugmyndin sé í rauninni sú að koma með einhvers konar, hvað á maður að segja, Salómonslausn í því að ef við erum ekki til í 18. viku þá erum við heldur ekki til í 22. viku, en 20. vika gæti verið einhver lending. Sú tímasetning rekst á sömu horn og ég nefndi hvað varðar 22. viku, þ.e. að hún rekst á þessi sömu horn sem eru þau að framkvæmdin í dag er hreinlega önnur þrátt fyrir að lögin segi það ekki beinlínis, en eins og ég nefndi áðan varðandi 10. gr. núgildandi laga eru heldur engin efri tímamörk á þeim. Framkvæmdin er engu að síður við 22 vikur. Það er það sem við erum að setja inn í lögin núna en með þeirri heimild sem 3. mgr. 4. gr. kveður á um. Ég held að það sé vel.
Ég hef, herra forseti, lesið hverja einustu umsögn sem kom vegna málsins, farið gaumgæfilega yfir öll gögn málsins, leitað mér ráða innan þings og utan, bæði hjá sérfræðingum sem komu fyrir nefndina og öðrum sérfræðingum. Niðurstaða mín er sú að lendingin sem við erum að velja, þ.e. við 22. viku, sé sú sem við eigum að geta náð sátt um. Við sem þingmenn munum hins vegar ekki hafa áhrif á siðferðileg gildi fólksins í samfélaginu, trúarskoðanir þeirra o.s.frv. Við munum ekki stjórna fjölskyldum í landinu til að taka ákvarðanir eða ekki ákvarðanir um eitt eða annað.
Við getum sjálf haft okkar siðferðilegu gildi. Við getum sjálf haft skoðanir okkar á því hvað okkur finnist rétt eða rangt, og það kann að vera eitthvað allt annað en lögin segja til um. Við verðum að horfast í augu við það að lögin eiga að vera almenns eðlis, þau eiga að taka á þáttum almenns eðlis. Þau eiga að tryggja rétt þegnanna í landinu. Þegnarnir þurfa ekki að nýta sér þennan rétt til fullnustu ef þeir vilja það ekki. Við eigum að búa þannig um að við séum a.m.k. ekki að rýra rétt þeirra frá því sem verið hefur í raun.