149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[18:32]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir andsvarið. Það er ekki bara í sókn þessarar tegundar heilbrigðisþjónustu sem við virðum rétt barna til að sækja þjónustu heldur víða annars staðar — það þarf ekki alltaf að blanda foreldrum í, til að mynda þegar ungar stúlkur sækja sér getnaðarvarnir o.s.frv. Ég tel að slíkar almennar heimildir til þess að börn geti sótt sér þjónustu og treyst því að trúnaðar sé gætt við þau eigi frekar heima í almennum lögum, eins og til að mynda barnaverndarlögum eða barnalögum, eða jafnvel í lögum um heilbrigðisþjónustu.

Ég held það eigi ekki sérstaklega að taka það fram í þessum lögum, þó að vissulega hefði það verið hægt. En ég held að umfang þessara vangaveltna sé í rauninni meira en svo að það eigi að vera inni í almennri löggjöf og þess vegna eigi sú umræða eftir að fara fram, til að mynda innan þessarar nefndar sem ég nefndi í ræðu minni, þ.e. þingmannanefndar um málefni barna.