149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[18:35]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég tek undir það með hv. þingmanni að auðvitað er þetta mál bæði flókið og erfitt og ég efast ekki um góðan hug þingmannsins hvað það varðar að reyna að setja sig vel inn í málið og átta sig á þeim „núönsum“ sem kunna að vera á málinu.

Varðandi það sérstaklega hvort við skerum okkur úr hinum Norðurlöndunum: Jú, það er blæbrigðamunur á milli laganna á mismunandi Norðurlöndum. Við erum núna að setja strikið við 22 vikur, sem gengur, ef ég man rétt, sirka tveimur vikum lengra en undantekningarlausu strikin hjá einhverju öðru af Norðurlöndunum. En á hinn bóginn eru önnur lönd sem við berum okkur stundum saman við, eins og Holland, Stóra-Bretland og Kanada, með heimildir sem ganga lengra. Auðvitað er alltaf erfitt að meta hvaða strikum eða hvaða viðmiðum eigi að fylgja sérstaklega gagnvart einhverjum öðrum löndum.

Það er líka menningarmunur á milli landa sem þarna skiptir máli og getur haft sitt að segja. Svo má líka segja um löggjöf eins og þessa, sérstaklega sem snýr að þessu leyti til að ákveðnum réttindum kvenna, að líklega er það þannig, þó að ég vilji kannski ekki endilega fullyrða það alveg fortakslaust, að nýjasta löggjöfin í hverju Norðurlandanna á hverjum tíma er líklega alltaf framsæknust. Og kannski spilar þar inn í að við erum þá að stíga skrefinu örlítið lengra en næstu lönd.