149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[19:10]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrirspurnirna og þykir mjög vænt um hana. Við eigum sifjarétt þar sem við getum litið á einstaklingana, mann og konu í þessu tilviki, og hv. þingmaður talaði um föður. Þetta er erfitt að setja í lög nema segja hreint út að ætlast sé til þess ef um sambúðarmaka eða hjón er að ræða eða annað slíkt og sérstaklega ef faðirinn er meðvitaður um þungunina. Stundum er faðirinn ekki meðvitaðir um að einhvers staðar eigi hann von á barni. Í þeim tilfellum myndi konan væntanlega geta ákveðið þetta sjálf án vitundar föður, því að hann veit ekki neitt, það væri ákveðinn ómöguleiki í því. En það er hægt að vera með tilmæli þar sem er ætlast til þess að fólk hafi samráð um slíka hluti. Ef það er hins vegar einbeittur vilji gegn því getur löggjafinn illa komið í veg fyrir það.

Það væri líka alveg sjálfsagt, finnst mér, að hafa vinsamleg tilmæli, alveg eins og er unnið með mál í sifjarétti af viðkomandi aðila, enda býst ég við að það sé gert eins og hv. þingmaður bendir á, sérstaklega ef um pör að ræða og annað slíkt, að þau taki sameiginlega þá erfiðu ákvörðun. Ég lít á það þannig. Ég tel að löggjafinn geti alveg látið þetta fylgja með. Við getum alveg gert það, hreinlega ætlast til þess að þarna sé um samráð að ræða.