149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[19:23]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður fór yfir upplifun sína af þeirri umræðu sem hefur átt sér stað í þingsal um þetta mál. Það vill svo til að við erum í 3. umr. Ég renndi yfir feril þessa máls í þinginu og sé ekki að hv. þingmaður hafi einu sinni tekið þátt í umræðum um það frá því að það fór í 1. umr., ekki í 2. umr. Hann kemur núna á lokasprettinum í 3. umr. og talar um að ekki sé verið að tala um stóru spurningarnar í þessu máli. Ég velti fyrir mér, fyrst hv. þingmaður leggur til að draga þetta mál til baka og segir að það sé alls ekki nógu vel rætt, hvers vegna hann hafi ekki komið að því með nokkru móti fyrr en nú, fyrst hann hefur þessar þungu áhyggjur af því að það þurfi að ræða um stóru spurningarnar.

Svo langar mig að færa hv. þingmanni þær fréttir að það hafa fjölmargir hv. þingmenn rætt um akkúrat þennan þátt. Hvenær kviknar réttur fósturs til lífs? Hvar liggja mörkin á milli sjálfsákvörðunarréttar kvenna og réttar fósturs til lífs? Meðal annarra hefur sú sem hér stendur rætt það í 1. umr. og hefði hv. þingmaður getað heyrt það hefði hann tekið þátt í þeirri umræðu.