þungunarrof.
Virðulegur forseti. Það fer betur á því að við þingmaðurinn ræðumst við í samtíma frekar en eins og gerðist fyrr í dag þar sem ég nefndi hann úr pontu og hann gat ekki komið til andsvara. Þingmaðurinn nefnir að það sé ekki skylda hans að færa rök fyrir máli sínu og það má til sanns vegar færa. Raunar mætti alveg nefna að það á sér stað ákveðin tilfinningabylting í þessu máli þar sem það er einmitt einkenni margra sem hér kveðja sér hljóðs að það eru ekki rök heldur tilfinningar sem allt í einu eru góðar og gildar inn í umræðuna, sem er ekki alltaf reyndin í þessum sal. En þegar um er að ræða umræðu um sjálfsákvörðunarrétt kvenna virðast tilfinningar karla yfir miðjum aldri vega nokkuð þyngra en rökin sem velferðarnefnd fór yfir.
Það var ekki öfundsverð staða sem hv. þm. Sigurður Páll Jónsson var settur í, að vera sendur með 16 spurningar á fund velferðarnefndar án mikils undirbúnings. Þegar hann var spurður út í hverjar nýju spurningar væru, hvaða nýju upplýsingar hefðu komið fram frá því að fulltrúi Miðflokksins í velferðarnefnd samþykkti málið tækt til 2. umr. var það ekkert skylda hans að færa fram rök en fyrst hann gat ekki nefnt eitt einasta dæmi um nýjar spurningar sem þyrfti að svara, ekki eitt einasta dæmi um nýjar upplýsingar sem þyrfti að bregðast við þá bar velferðarnefnd auðvitað engin skylda til að verða við því að tefja málið frekar í nefndinni til að hjakka í sama farinu. Engin málefnaleg ástæða kallaði á að við héldum málinu lengur í nefndinni og það var bara í samræmi við það sem fastur fulltrúi Miðflokksins í nefndinni komst að ásamt okkur öllum hinum 29. apríl sl.