149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[20:07]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég er ekki með þau rök, hv. þingmaður, (Gripið fram í.) en það getur vel verið að hv. þm. Anna Kolbrún Árnadóttir hafi verið með þau rök og hún er örugglega með þau rök. Ég er ekkert að blanda mér í það hvort þetta var frágangssök. Þetta var bara svona og ég kom þarna inn í forföllum hv. þingmanns með litlum fyrirvara. Þannig var þetta mál og ég vildi koma hingað upp til að segja að sá sem hér stendur er ekki upphaf og endir þess að þetta mál var tekið út úr nefnd.