fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Herra forseti. Ég held að það sé rétt að koma ákveðnum EFTA-ríkjum til varnar og segja að það sé mikill vilji til þess að hlúa að mannréttindum hjá þeim ríkjum. Þau vilja kannski ekki blanda þessu svo mikið saman. Ég lít svo á að viðskipti séu ekki undanskilin og frábrugðin mannréttindum, heldur eru viðskipti hluti af eðlilegum samskiptum fólks í samfélagi manna.
Því er að mínu mati óeðlilegt, og ég held að það sé algeng skoðun hér, að aðskilja þessa hluti. Ég tel að mannréttindi og viðskipti eigi bara mjög vel saman. Því miður hefur ekki alltaf tíðkast að blanda því saman og þá kemur upp alltaf þessi umræða. Það hefur oft verið nefnt á grundvelli Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og í samhengi við viðskiptastríð, þ.e. ef gulrótin og spýtan eru notaðar á þann hátt að verið er að veifa gulrót aukinnar fríverslunar framan í lönd og síðan sagt: Nei, við ætlum ekki að stunda viðskipti við ykkur þegar að þið hegðið ykkur illa.
Þá er mjög auðvelt að það fari út í einhvers konar þannig ástand að spýtan verði notuð of mikið og of frjálslega. Þetta er eitthvað sem oft hefur verið sagt gagnvart t.d. Kína sem hefur ekki alveg fullkomlega hreinan skjöld í mannréttindamálum, og reyndar gagnvart fleiri löndum. Ég held að það sé einmitt svo bæði með gulrætur og spýtur að það sé einhvers konar jafnvægispunktur. Að við getum sagt: Nei, við ætlum ekki að taka þátt í þessu núna vegna þess að okkur finnst það ekki bjóðandi. En auðvitað erum við til í að reyna að efla og styrkja samstarf inn í framtíðina, ekki síst ef fólk kemur betur fram og hlúir að þeim réttindum sem okkur þykja mikilvæg.