149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.

539. mál
[20:59]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég velti því líka fyrir mér þegar ég hlusta á þingmanninn hvort að vandinn við fríverslunarsamninga í gamla skilningnum sé ekki að þeir séu bara allt of þröngir. Sambúð þjóða gengur út á miklu meira en það hvaða vörur við sendum á milli þeirra. Að byggja upp samfélag þjóða snýst um samskipti, ekki viðskipti. Það snýst um að við höfum vistaskipti, að við stundum nám í löndum hvers annars, að við ferðumst þangað, að við þekkjum fólk þaðan, að við setjum andlit á þjóðir þótt þær séu fjarri okkur, að þekkjum fólk þaðan.

Viðskipti eru eitt af verkfærunum sem hægt er að nota til að ná þeim árangri. Viðskiptum fylgja samskipti en til þess að samskiptin dýpki þurfum við að vera sammála um eitthvað merkilegra en vörur og peninga. Eitt af því eru mannréttindi, að ég tel. Annað er sjálfbær þróun, sú sameiginlega afstaða okkar að við þurfum að standa vörð um jörðina til framtíðar.

Það er alheimsvandamál, sem er mjög eðlilegt, að fríverslunarsamningar yfir hálfan heiminn taki á. Það er samtal sem þarf að eiga sér stað alls staðar.

Eins og ég sagði áðan bíð ég þess spenntur að sjá hvernig hv. þm. Smára McCarthy og þeim velviljuðu þingmönnum annarra EFTA-ríkja sem hann starfar með innan þingmannanefndarinnar gengur að snúa þessu olíuskipi, sem ég held að það megi kallast, að koma nýjum áherslum inn í fríverslunarmódel heimsins.