149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

búvörulög.

646. mál
[21:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég kynni hér nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingar á búvörulögum, nr. 99/1993, með síðari breytingum, sem er endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar og verðjöfnunargjöld. Það er frá meiri hluta atvinnuveganefndar.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fengum við á fund okkar alls 11 manns frá ráðuneytinu, hjá Bændasamtökum Íslands, frá Landssamtökum sauðfjárbænda, sláturleyfishöfum og frá Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum mjólkur- og kjötvinnslufyrirtækja, Samkeppniseftirlitinu og eins komu fulltrúar frá Viðskiptaráði Íslands.

Nefndinni bárust sex umsagnir og með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á búvörulögum sem miða að því að framfylgja samkomulagi um breytingar á samningi um starfsskilyrði í sauðfjárrækt sem skrifað var undir 11. janúar 2019. Breytingarnar eru m.a. þær að búin verður til innanlandsvog til að meta og skilgreina þarfir og eftirspurn innanlandsmarkaðar eftir kindakjöti og sauðfjárbændum býðst að gera aðlögunarsamninga sem gera þeim kleift að byggja upp nýjar búgreinar og búskaparhætti á jörðum sínum. Markmiðið er að stuðla að jafnvægi framboðs og eftirspurnar á markaði með sauðfjárafurðir, auka frelsi sauðfjárbænda ásamt því að auðvelda aðlögun að breyttum búskaparháttum.

Samkomulagið er liður í endurskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárbænda frá 19. febrúar 2016 og var undirritaður með fyrirvara um samþykki Alþingis á nauðsynlegum lagabreytingum og samþykki félagsmanna Landssamtaka sauðfjárbænda og Bændasamtaka Íslands í atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan fór fram meðal félagsmanna í mars 2019 og var samningurinn samþykktur með 68% greiddra atkvæða, sem þykir nú nokkuð öruggt.

Fyrir nefndinni kom almennt fram ánægja með fyrirhugaða breytingu á búvörulögum. Breytingin er talin þjóna hagsmunum greinarinnar vel enda ætlað að efla starfsgreinina, m.a. með því að auðvelda sauðfjárbændum að takast á við sveiflur í ytri og innri umhverfi greinarinnar. Í umsögnum komu fram sjónarmið um að fyrirhuguð niðurfellingu á 85. gr. A, um verðjöfnun við útflutningi fullunninna innlendra vara, myndi skekkja samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem framleiða vörur úr landbúnaðarhráefni. Betra væri að einfalda framkvæmd ákvæðisins og gera fleirum kleift að nýta úrræðið auk þess að auka framlag ríkisins til málaflokksins.

Meiri hlutinn bendir á að fram kemur í greinargerð frumvarpsins að heildarfjármagn sem veitt hefur til verðjöfnun árið 2019, samkvæmt fjárlögum er 2,5 milljónir. Því er um óverulega upphæð að ræða á ári hverju. Er enn fremur bent á að ráðstafanir hafa verið gerðar til að lækka nýmjólkur- og undanrennuduft til matvælaframleiðslu hér á landi og því er ákvæðið óþarft.

Nefndinni var bent á að brýna þyrfti skyldu bænda til að skila inn lögbundnu skýrsluhaldi, þannig að skil á skýrsluhaldi er skilyrði fyrir greiðslu stuðningsgreiðslna samkvæmt ákvæðinu.

Meiri hlutinn tekur undir þetta sjónarmið og leggur því til breytingu á 3. mgr. 30. gr. laganna. Meiri hlutinn telur að með breytingunum sé verið að styðja betur við sauðfjárbændur og þeim auðveldað að styrkja stoðir búrekstrar síns. Þannig sé sauðfjárbændum veitt aukið frelsi til að stýra búi sínu með þeim hætti sem þeim henti best og stuðla að aukinni hagkvæmni í greininni.

Meiri hlutinn leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingum.

1. Orðskýringin Nýliði í 1. gr. orðist svo: Nýliði er einstaklingur sem er á aldrinum 18–40 ára á því ári sem hann óskar eftir stuðningi og er að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hefur leigt eða keypt búrekstur á þremur undangengnum árum frá 1. janúar á umsóknarári að telja.

2. Á eftir 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:

Á eftir orðunum „eða garðyrkjubýli“ í 3. mgr. 30. gr. laganna kemur: taka þátt í lögbundnu skýrsluhaldi með fullnægjandi skilum, sem eru skilgreind nánar í reglugerð.

3. Við 2. gr.

a. Í stað dagsetningarinnar „1. september“ í a-lið komi: 1. júní. Snýr þetta að greiðslumarkinu.

b. Við bætist nýr stafliður sem verði b-liður, svohljóðandi: Í stað orðsins „framsali“ í 3. mgr. kemur: tilfærslu.

c. Í stað orðanna „á kaupum“ í 3. málsl. b-liðar komi: við kaup.

d. Við 3. málslið b-liðar bætist: og skulu skilgreiningar á slíkum hópum útfærðar í reglugerð.

e. 4. málsliður b-liðar falli brott.

4. 8. gr. orðist svo:

Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2020 nema ákvæði a-liðar 3. gr. sem öðlast gildi 1. júní 2019 og ákvæði c-liðar 3. gr. og 8. gr. sem öðlast gildi 1. september 2019.

Undir þetta rita nefndarmenn atvinnuveganefndar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður, sú sem hér stendur, Halla Signý Kristjánsdóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Ásmundur Friðriksson, Kolbeinn Óttarson Proppé, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Ísleifsson, Sigurður Páll Jónsson, allir hv. þingmenn í atvinnuveganefnd.