samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Virðulegur forseti. Ég má til með að ræða hér örlítið við þingmanninn um samráðið við börn sem hún kom inn á. Vegna þess að mér finnst skipta miklu máli að við höfum átt það í þessu máli og það er nokkuð sem við erum að feta okkur áfram með í þingnefndum. Á þessum vetri man ég eftir því að við höfum kallað til börn og ungmenni, t.d. þegar við breyttum lögum um umboðsmann barna, í þessu máli og í málinu sem flutningsmaður nefndi, sem sem snýst um aðgerðir gegn ofbeldi næstu árin.
Ég kveð mér hér hljóðs til að það sé sagt að þetta er nokkuð sem við ættum að fara að vanda okkur meira við. Þetta hefur yfirleitt gengið mjög vel hjá okkur. Ungmennin sem við fáum á fundi nefndanna eru mjög frambærileg og hafa skýra afstöðu í málum og eru með mikilvægt innlegg sem nýtist okkur við vinnslu málsins. En það sem við höfum rekið okkur á er að við sem þingnefnd erum misvinalegt umhverfi fyrir fólk. Bara fyrir fólk almennt sem er óvant því að koma fyrir þingnefnd þá eru nefndarherbergin og þetta umhverfi nánast ógnandi.
Þegar við tölum um fólk sem hefur kannski enga reynslu af því að koma fyrir þingnefnd getur þetta verið nokkuð óþægilegt. Reynsla okkar hv. flutningsmanns núna í vetur held ég að sé sú að við þurfum að koma okkur upp ákveðnum verklagsreglum um það hvernig nefndasvið undirbýr þá hópa ungmenna sem koma á nefndarfundina, hvernig talsmenn nefnda vinna fyrir fram með viðkomandi og hvernig við síðan sem hópur búum til umhverfi sem er móttækilegt fyrir skilaboðunum sem við erum að kalla eftir. Af því að við viljum að þetta sé jákvæð upplifun fyrir þá sem koma fyrir nefndina.