149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs.

417. mál
[22:01]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tek undir það. Og þar sem ég hef, eins og hv. þingmaður, verið talsmaður barna hér á þingi, hef ég fengið tækifæri til að hitta þau frábæru ungmennaráð, til að mynda umboðsmanns barna, Barnaheilla og UNICEF. Þar eru ofboðslega öflugir einstaklingar sem fengið hafa þjálfun í því að tjá skoðanir sínar og safna saman sjónarmiðum ungmenna.

Ég held að þetta sé mikilvægt, ég tek undir það. Það kann vel að vera, og ég hugsa að hv. þingmaður hafi rétt fyrir sér í því, að það að koma fyrir þingnefnd er kannski ekki alveg allra. Við munum kannski þurfa að breyta aðeins eða milda ásýndina og þjálfa fólk aðeins í því. Þó vil ég ítreka það, og það er mjög mikilvægt eftir að hafa átt samtöl við börn og ungmenni sem tekið hafa þátt í svona, að þau komi örugglega á sínum forsendum, að þeim sé ekki fjarstýrt af einhverjum fullorðnum með leiðbeiningum um að það væri sniðugt að segja þetta eða hitt. Það er svo mikilvægur þáttur.

Enn og aftur segi ég: Mér finnst þetta algjörlega til fyrirmyndar hjá allsherjar- og menntamálanefnd í þessu máli sem og öðrum sem hv. þingmaður nefndi og ég tel, eins og hv. þingmaður, að við ættum að gera meira af því.