149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[22:03]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Við ræðum frumvarp um áfengi í búðir, eða eins og einhver sagði: Brennivín í búðir. Er þetta framhald 1. umr. sem var hér fyrir nokkru síðan. Mig langar í þessari ræðu að vitna aðeins í umsagnir sem ég var að lesa, sem eru reyndar frá árinu 2017. Það hefur í raun og veru ekkert breyst í þessu máli síðan þá. Ég ætla því að leyfa mér að lesa aðeins upp úr þessum umsögnum.

Hér er ég fyrst með umsögn frá Núll prósent hreyfingunni. Það eru bindindissamtök. Með leyfi forseta:

„Áfengisneysla er meðal sterkustu áhættuþátta lýðheilsu, að mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Kostnaður samfélagsins vegna neyslu áfengis birtist víða, m.a. í heilbrigðiskerfinu, löggæslu- og dómskerfinu, tryggingakerfinu og atvinnulífinu svo dæmi séu nefnd. Að ógleymdum áhrifum á einstaklinga, börnin, fjölskyldur, nærsamfélagið og samfélagið í heild.

Í nýlegri bók sem leiðandi vísindamenn á sviði áfengis- og vímuefnamála tóku saman um fyrirliggjandi niðurstöður rannsókna í áfengis- og vímuefnamálum kemur fram að aukið aðgengi/framboð á áfengi leiðir til aukinnar neyslu. Af þessu er ljóst að áfengi er engin venjuleg söluvara sem hægt er að fjalla um og setja eingöngu í afmarkað markaðs- og viðskiptasamhengi.“

Þarna kemur fram að áfengi er ekki nein venjuleg vara. Tek ég heils hugar undir það. Enda kom ég inn á það í ræðu minni hér fyrr að áfengi er ekki nein venjuleg vara heldur hugbreytandi efni. Og það er líka ávanabindandi efni. Þar af leiðandi getur það ekki talist venjuleg vara.

Það hefur verið talað um í ræðum hjá þeim sem eru fylgjandi þessu máli að koma áfengi inn í matvöruverslanir og fleira, að við eigum ekki að vera með forsjárhyggju. En það er nú svo skrýtið að margt er borið á borð okkar hér á hinu háa Alþingi og sumt af því mætti flokka sem forsjárhyggju. Tek ég þátt henni af þessu tilefni vegna þeirrar staðreyndar að áfengi er ávanabindandi og hugbreytandi efni.

Mig langar aðeins að vitna í aðra umsögn sem er frá Áfengis og tóbaksverslun ríkisins, með leyfi forseta:

„Til að sporna við skaðlegum áhrifum áfengisneyslu skal hér vísað í stefnu frá 2014, Stefna í áfengis- og vímuvörnum til ársins 2020, en meðal virkra aðgerða er stýring á áfengisneyslu með verði, einkasölu ríkis og háum aldursmörkum til áfengiskaupa. Rannsóknir sýna einmitt að rekstur ríkiseinkasölu er einn mikilvægasti þátturinn í aðhaldssamri áfengisstefnu.“

Í stefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í málaflokknum, er lögð rík áhersla á að „stefna og aðgerðir skuli byggja á vísindalegum niðurstöðum og lýðheilsusjónarmið ávallt vera í forgrunni. Þar segir orðrétt:

„Með viðurkenndum og gagnreyndum aðgerðum er unnt að draga úr þeim skaðlegum áhrifum sem neysla áfengis og annarra vímugjafa hefur á einstaklinginn og samfélagið í heild og tryggja velferðarsamfélag þar sem öllum er skapað það frumkvæði sem best verður á kosið. Stefna og aðgerðir skulu byggjast á bestu fáanlegum vísindagögnum um skilvirkni og hagkvæmni. Ef vísindagögn skera ekki úr álitamálum skal fara með gát og hafa að leiðarljósi að stuðla að heilbrigði og velferð fólks.““

Svo mörg voru þau orð. Hæstv. forseti, ég hef lokið máli mínu.