149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[22:18]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Silja Dögg Gunnarsdóttir sagði að við værum að ræða „klassískt mál“. Ég held að það séu orð að sönnu. Mig minnir að hv. flutningsmaður Þorsteinn Víglundsson hafi talið þetta vera 11. skipti sem mál af þessum toga er lagt fram hér á þingi, þó alltaf með einhverjum smávægilegum breytingum.

Það sem ég vil gera hér á þeim stutta tíma sem ég hef til ráðstöfunar er að gera örlítið grein fyrir afdrifum málsins síðast þegar það var flutt hér í salnum. Það sat inni í allsherjar- og menntamálanefnd þar til stuttu fyrir þinglok á 146. þingi og var síðan afgreitt út með meirihlutaáliti og löngu síðar lagði sá sem hér stendur fram nefndarálit minni hluta — en hvorugt þessara skjala náði hingað í sal til umræðu.

Í greinargerð með því frumvarpi sem við ræðum er vísað til nefndarálits meiri hlutans frá 146. þingi og lesendur hvattir til að kynna sér þar þau sjónarmið sem meiri hlutinn tók til skoðunar. Ég vil bæta því við að fólk hefði gott af því að kynna sér álit minni hlutans til að sjá þau sjónarmið sem meiri hlutinn hunsaði. Það getur fólk gert með því að fletta upp þskj. 1162 frá 146. þingi. Þar er af ýmsu að taka og ekki ætla ég að fara yfir það allt saman. Kannski er fyrst að nefna þau forkastanlegu vinnubrögð sem voru viðhöfð í allsherjar- og menntamálanefnd þegar málið var afgreitt út úr nefndinni.

Nefndin tók gesti á tímabili sem náði til 6. apríl 2017. Þegar þeim gestakomum var lokið fannst manni nú málið liggja nokkuð í láginni um sex vikna skeið, enda höfðu flestar umsagnir verið giska neikvæðar. En þá allt í einu dúkkaði fulltrúi meiri hluta nefndarinnar upp með fullbúið nefndarálit og breytingartillögur, ansi umfangsmiklar, sem meiri hlutinn afgreiddi út með aflsmunum 19. maí 2017. Þær breytingartillögur eru í rauninni grunnurinn að því máli sem við ræðum hér. Þannig að mál dagsins í dag er málið frá því fyrir tveimur árum að viðbættum breytingartillögum meiri hlutans.

Ég má til með að lesa upp bókun sem minni hluti allsherjar- og menntamálanefndar lagði fram við þetta tilefni, með leyfi forseta:

„Fulltrúar minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar mótmæla því að meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar hafi afgreitt mál nr. 106, verslun með áfengi og tóbak, út úr nefndinni á fundi 19. maí án þess að fyrir liggi umsagnir velferðar- og fjárlaganefnda, sem óskað hefur verið eftir. Auk þess hefur nefndinni ekki borist svar forsætisnefndar við beiðni um skýrslu frá Hagfræðistofnun um úttekt á þjóðhagslegum áhrifum breytinganna.

Vegna þess hversu viðamiklar breytingatillögur meiri hlutinn vill gera á frumvarpinu telur minni hlutinn að það sé nauðsynlegt að fá nýjar umsagnir við þeim tillögum. Ekki er hægt að afgreiða málið úr nefnd án nýrra umsagna.“

Eins og forseti heyrir á þessari bókun minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar lagði nefndin upp með nokkuð metnaðarfulla umfjöllun um málið. Vegna þess að eins og hér hefur komið fram í öllum umræðum er í mörg horn að líta. Þetta er mál sem snertir tekjuöflun ríkisins, þetta er mál sem snertir lýðheilsu og það eru þjóðhagsleg áhrif af t.d. ölvunarakstri sem breytt aðgengi getur haft áhrif á. Hvaða áhrif vitum við ekki þar sem meiri hlutinn stóð í vegi fyrir því að það yrði kannað.

Það sem kannski er hvað verst við þessa afgreiðslu — og það er þess vegna sem mér finnst mikilvægt að fólk kynni sér álit minni hlutans á sínum tíma en ekki bara þá einhliða umfjöllun sem meiri hlutinn birti í sínu áliti — er að hluti umsagnaraðila var sendur til velferðarnefndar.

Velferðarnefnd tók á móti SÁÁ, tók á móti samráðshópi um forvarnir hjá Reykjavíkurborg, tók á móti Krabbameinsfélagi Íslands, tók á móti Saman-hópnum, tók á móti Samstarfi félagasamtaka í forvörnum, tók á móti Fræðslu og forvörnum og einhverjum fleirum, að mig minnir. Þannig að lýðheilsuþáttur þessa máls var sendur yfir til þeirrar nefndar sem fer með lýðheilsumál hér á þingi í þeirri von að hún myndi skila af sér umsögn til allsherjar- og menntamálanefndar sem væri hægt að nota sem grundvöll ákvarðanatöku þeirrar nefndar. Sú umsögn skilaði sér ekki, enda þótti meiri hlutanum þægilegra að hunsa lýðheilsurökin og það er það sem var gert þegar málið var tekið út.

Örlítið að lýðheilsurökunum áfram, myndi ég segja. Nú verður forseti að fyrirgefa mér, það er svo langt liðið frá fyrsta umræðudegi í þessu máli þetta þingið, sem ég held hafi verið 6. mars þegar flutningsræðan var haldin, þannig að ég man ekki nákvæmlega hvernig það var en mér fannst dálítið lítið gert úr því sem fagmenn segja en dálítið mikið gert úr tilfinningarökum flutningsmanna. „Ég tel“, heyrði maður t.d. oft varðandi það sem flutningsmenn „telja“ verða áhrif af þessu frumvarpi, verði það samþykkt.

Það vill svo til að það komu inn umsagnir fyrir tveimur árum sem byggjast ekki á tilfinningum stjórnmálamanna heldur á rannsóknum lýðheilsufræðinga og annarra sérfræðinga. Það sem skiptir kannski mestu og var einna undarlegast að hafi verið hunsað var ábending velferðarráðuneytisins. Við erum ekki að tala um bara einhvern aðila úti í bæ, við erum að tala um velferðarráðuneytið, sem fyrsti flutningsmaður þessa máls sat reyndar í sem ráðherra á þeim tíma þannig að ég vona að hann sé ekki það illilega genginn í björg að hann sé farinn að tala niður ráðuneytið sem hann stýrði að hluta á þeim tíma sem það skrifaði þessa umsögn. Ráðuneytið bendir á það sem hefur komið fram hérna í umræðunni þetta árið, að þessir ólíku þættir, aðgengi, verð og forvarnir, eru samofnir í opinberri stefnu Íslands í áfengis- og vímuvörnum. Það er ekki hægt að klippa einn út úr því án þess að sú stefna umturnist.

Svo ég sé ekki bara að segja hvað „ég telji“ heldur hvað velferðarráðuneytið sagði, þá sagði það, með leyfi forseta:

„Miklir hagsmunir felast í árangri síðustu ára og tilslakanir í áfengismálum eru til þess fallnar að draga úr þeim árangri. Þá er ekki hægt að reikna með að auknar forvarnir geti bætt upp neikvæðar afleiðingar tilslakana í áfengismálum og afnáms eins öflugasta stýrikerfis til að draga úr heildarneyslu áfengis og þar með skaða í samfélaginu.

Mikilvægt er að við alla ákvarðanatöku stjórnvalda er varðar lýðheilsu, áfengis- og vímuvarnir að lýðheilsusjónarmið séu höfð að leiðarljósi ásamt bestu þekkingu á virkum og árangursríkum aðgerðum.“

Ég tek aftur fram að þetta er ekki eitthvað sem mér finnst. Þetta er eitthvað sem velferðarráðuneyti Þorsteins Víglundssonar, þáverandi hæstv. ráðherra, sagði. Þetta er eitt af þeim fjölmörgu atriðum gagnrýnenda frumvarpsins á 146. þingi sem var sópað undir teppið þegar meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar reif málið út til þess eins að getað skorað einhver stig í kladdanum.

Nú er málið komið aftur og mér skilst að hv. flutningsmaður vilji senda það til efnahags- og viðskiptanefndar í þetta skiptið, sem kemur mér nokkuð á óvart. Ég vona að það byggi á einhverjum málefnalegum rökum en ekki þeirri staðreynd að flutningsmaðurinn situr sjálfur í þeirri nefnd og þykir kannski þægilegast að hafa málið í sínum höndum.

Eins og ég nefndi við hv. þm. Þorstein Víglundsson við upphaf þessarar umræðu 6. mars síðastliðinn tel ég, af öllu sem ég hef rakið hér að framan og líka vegna þess að lýðheilsusjónarmiðin eru sterkar ofin inn í þetta mál en það síðasta, að þetta mál eigi augljóslega heima í velferðarnefnd. Ég legg það því hér aftur til, eins og ég gerði í andsvari við þingmanninn 6. mars, og fer fram á að forseti taki afstöðu til þeirrar vísunar þegar þar að kemur.