149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[22:30]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langaði til að henda fram einni pælingu í sambandi við málsmeðferðina á þessu máli. Þetta mál á sér svolítið skrautlega sögu hvað varðar málsmeðferð, sér í lagi á þarsíðasta kjörtímabili þegar sá sem hér stendur var að kynnast því svona í fyrsta sinn. Það fór eiginlega allt í steik, nefndarstörfin fóru í steik, stjórnarsamstarfið fór í steik, stjórnarandstöðusamstarfið fór í steik, það fór allt í steik. Það virkaði ekkert hérna á Alþingi með þetta mál. Alveg þannig að það væri hægt að skrifa stutta bók um það allt saman.

Það sem eiginlega stendur eftir, eftir allt það havarí, í mínum huga, vegna þess að mér er sjálfum svona hálfsama um þetta mál og ætla að halda eina ræðu á eftir til að útskýra nákvæmlega hversu mikið mér er sama, þótt ég styðji það, bíðið bara; en ég hef velt fyrir mér frá þeim tíma hvort andstæðingar málsins myndu ekki fá sínu framgengt best með því að reyna að koma því sem hraðast í gegnum þingið.

Nú átta ég mig á því að hv. þingmaður er ekki að reyna að tefja málið. Þetta er umsvifamikið mál og það er sjálfsagt að ræða það vel og lengi í ýmsum nefndum. Ég geri engar athugasemdir við það og hef ekki orðið var við neitt skipulagt málþóf í þessu tilfelli — í þetta sinn, þótt ég hafi vissulega sé það áður. Ég er ekki að reyna að beita þessari hugmynd sem einhverri kylfu heldur meira eins og gulrót.

Væri það ekki best bara að hraða þessu máli í gegnum þingið og fella það? Ég stórefast um að það sé þingmeirihluti fyrir því. Ef það yrði fellt í þinginu hygg ég að hv. þingmaður fengi frið fyrir því í góð tíu ár.

Bara svona hugmynd. Mig langaði að henda þessu fram vegna þess að það virðist oft vera sjálfkrafa tilhneiging til að vilja taka meiri tíma í mál sem fólk er á móti. Kannski er það akkúrat hið öfuga sem þarf til að setja þetta í kæliboxið í nokkur ár.