149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[22:33]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér finnst almennt að málsmeðferð eigi að byggja á málefnum en ekki taktík. Mér finnst augljóst að frumvarp sem snýst um, eins og velferðarráðuneytið sagði fyrir tveimur árum, að taka úr sambandi eitt mikilvægasta stjórntæki opinberrar stefnu í áfengis- og vímuvörnum, förum við ekkert að afgreiða á einhverju hundavaði. Sama þó að okkur líði kannski persónulega betur ef þetta mál dúkkar ekki upp ár eftir ár verð ég bara að viðurkenna að ég er að vinna í málum og afgreiða þau og rannsaka þau í nefndum, ekki út frá sjálfum mér heldur út frá almannahag. Almannahagur kallar ekki á að við séum í einhverri leikfimi til að fá þetta mál út úr heiminum heldur að við vinnum það vandlega og faglega.