verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegur forseti. Mér þykir svarið mjög málefnalegt hjá hv. þingmanni. Eins og ég sagði áðan þykir mér bara sjálfsagt að fólk fái þann tíma sem það telur við hæfi. Hins vegar hef ég ekki heyrt nein ný rök í þessu máli frá því að það var rætt á síðasta kjörtímabili. Þetta var nú bara svona vangavelta fyrir þá þingmenn sem telja málið vera orðið þokkalega rannsakað og ég hygg að svo sé. Það er mjög langt síðan ég heyrði ný rök eða ný gögn í málinu. Það eru bókstaflega mörg ár, nokkur ár, alla vega örfá ár, hvað á maður að segja?
Ég virði alveg svar hv. þingmanns. Ef hann vill skoða þetta betur er það bara sjálfsagt mál og er ekkert að gera nema að styðja það.
Mig langar samt að henda þessu fram fyrir þá þingmenn sem kannski telja málið nógu rannsakað til að hægt sé að taka ákvörðun. Mér finnst ekkert gefið að það myndi ná meiri hluta.
Það má líka nefna að það er kvartað hérna á þinginu yfir því að þetta taki tíma. Í hvert einasta sinn sem þetta mál er lagt fram er kvartað, hérna og í samfélaginu: Oh, er þetta mál komið enn og aftur? Sumir hv. þingmenn kvarta undan því að þurfa að vera að „sóa“ tíma sínum, eins og þeir segja sjálfir. Mér finnst tími þingsins mikilvægur þannig að ef það er hægt að sleppa því án þess að fórna neinni málsmeðferð myndi ég halda að alla vega einhverjir þingmenn myndu vera hlynntir því.
En svo hendi ég þessu nú svona fram af ákveðnu ábyrgðarleysi vegna þess að sjálfan langar mig ekki sérstaklega til að klára þetta mál hratt. Ég er bæði til í að tala um málið en líka að sleppa því. Mig langaði að henda þessu fram bara ef ske kynni að einhverjir aðrir hv. þingmenn létu sér koma til hugar að tefja hér mál.