verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegi forseti. Ég ætla að koma hér örstutt upp af því að mér finnst kominn tími til að ég taki til máls í þingsal um frumvarp um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak. Ég hef fylgst með umfjöllun um frumvörp sem lögð hafa verið fram á síðustu þingum í þeim tilgangi að auka aðgengi neytenda að áfengi og til að auka heimildir verslunarinnar til sölu á áfengi, þ.e. að auka möguleika verslunarinnar til að afla tekna með sölu á áfengi. Ég hef fylgst með umræðunni hér í þingsal og tekið þátt í umfjöllun allsherjar- og menntamálanefndar um málið oftar en einu sinni en ekki áður fengið tækifæri til að koma í ræðustól.
Áður en umfjöllun á 144. þingi hófst hafði ég ekki mjög afgerandi skoðun á málinu en því meira sem ég vinn með málið, því fleiri umsagnir sem ég les og því fleiri sjónarmið sem ég kynni mér, verð ég mótfallnari því, fyrst og fremst vegna forvarna- og lýðheilsusjónarmiða og vegna hagsmuna barna, beinna og óbeinna.
Í umfjöllun og í umsögnum sem komið hafa um fyrri mál til allsherjar- og menntamálanefndar hefur afgerandi meiri hluti umsagna verið á móti breytingu á fyrirkomulagi smásölu áfengis. Lýðheilsusjónarmið og áhyggjur af aukinni neyslu áfengra drykkja og afleiðingar þess hafa verið ríkjandi viðhorf í umsögnunum um frumvarpið. Margt bendir til að aukið aðgengi að áfengi auki neyslu vegna þess að einkareknar verslanir muni leitast við að ýta undir neyslu áfengis í hagnaðarskyni eins og almennt er með venjulega neysluvöru. Umboðsmaður barna og Barnaheill hafa margítrekað andstöðu sína við frumvarpið og hafa áhyggjur af áhrifum slíkrar lagasetningar á börn og ungmenni í íslensku samfélagi. Barnaverndarstofa hefur lagst gegn því að smásala áfengis verði gefin frjáls með tilvísun í að það muni skapa aukna hættu á að börn geti nálgast áfengi. Fyrri umsagnir hafa líka sýnt fram á hversu mikilvægt er að vinna frekari greiningar á því hvaða áhrif breytt smásölufyrirkomulag hefur. Rannsóknir annars staðar frá benda til að neysla aukist og ekki hefur verið lagt mat á kostnað sem fylgja slíkum breytingum fyrir einstaklinga, heimili, sveitarfélög eða ríkissjóð.
Ég ætla að fara hratt yfir sögu. Ég bendi á og ítreka að áfengi er ekki eins og hver önnur neysluvara. Eins og lög um verslun með áfengi og tóbak eru nú er þeim ætlað að skilgreina umgjörð um sölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð. Markmið þeirra er að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum. Það er mjög mikilvægt að halda þessum markmiðum til haga.
Ég leggst því alfarið gegn því að frumvarpið verði að lögum. Eftir mikla umræðu í þjóðfélaginu, ekki síst meðal sérfræðinga og áhugafólks um forvarnir, bendir allt til þess að breyting í anda frumvarpsins hefði afar slæm samfélagsleg áhrif á einstaklinga, heimili, sveitarfélög og ríkissjóð. Ég tek undir tillögu hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar um að málið gangi til velferðarnefndar.