149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[22:52]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Já, aðgengi hefur aukist. Neysla ungs fólks á áfengi hefur dregist saman og við fáum nýja áfengissala hér á hverjum degi úr einkabisness. Það er bara staðreynd. Eitthvað er verið að gera rétt? Ja, það má vel vera. Ég held að það ráðist ekki af því hvort ríkisstarfsmaður í ÁTVR selji mér áfengi eða einhver annar. Það er örugglega ekki ástæðan fyrir því að þetta hefur dregist saman af því að þetta er ríkisstarfsmaður. Ég held því fram að það séu allt aðrir þættir sem ráði því hvort áfengisneysla sé að aukast eða dragast saman. Það eru allt aðrir þættir en hvort ÁTVR selur mér áfengi eða einhver annar. (Gripið fram í: Rökleysa.) — Nei, nei. Það eru allt aðrir þættir en það hvort ÁTVR sé með áfengissölu eða einhver annar.

Það eru miklu flóknari atriði sem valda því að menn misnota áfengi eða drekka meira af því en hvað útsölustaðirnir eru margir. Það er ég alveg sannfærður um. Auðvitað er ég hér að glíma við afturhald dauðans, eins og hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson myndi segja, sennilega. (Gripið fram í: Ekki í …) Við því er ekkert að gera. Menn vísa hér oft í einhverja skoðanakönnun. Í þessari skoðanakönnun er fullt af fólki sem neytir ekki vörunnar, hefur engan áhuga á að selja hana. Við tökum ekkert mark á því. Ég lít á þetta sem hluta af viðskiptafrelsi í landinu með lögmæta vöru sem aðrir geti selt ef ríkisstarfsmenn geta selt hana.