149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[22:54]
Horfa

Hjálmar Bogi Hafliðason (F) (andsvar):

Frú forseti. Þingmaðurinn sagðist vilja geta nálgast t.d. geðlyfin sín hjá einkaaðila, ég held að hann hafi notað það dæmi. Hann verslar þau ekki bara hjá hvaða aðila sem er í matvöruverslunum, eins og er verið að tala um að gera. Það er ekki þannig. (Gripið fram í: Það er ég ekkert viss um.) Að sjálfsögðu gerist það, þegar menn segja A þá kemur B næst. Það er bara þannig. Þingmaðurinn veit það mætavel, alveg eins og ég.

Um leið og sala á áfengi, þessum vínanda, fer í einkabisness, (Gripið fram í.) þá eykst bara salan. (BN: Salan er í einkabisness.) Nei, við getum farið í hártoganir um hugtök. Um leið og áfengi fer í matvöruverslanir, allar matvöruverslanir, sem mun gerast. Það þýðir ekkert að hrista hausinn yfir því. Það er það sem mun gerast. (Gripið fram í.) Nei, það er það sem mun gerast. Þingmaðurinn veit það mætavel. Því að heildarneysla á vínanda hefur aukist. Það er þannig. Ekki hjá ungu fólki, það dregur úr því. Við viljum væntanlega að það haldist þannig að ungt fólk haldi sig fjarri þessu. Að því sögðu gæti ég náttúrlega sagt brandara um að við ættum bara að skella okkur á barinn. En ég ætla að sleppa þeim brandara.