149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[22:55]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Ég veit að ef ég byrja á því að fullyrða að ég ætli ekki að halda langa ræðu þá fyrst verður hún löng. Ég ætla því að sleppa því að fullyrða það en tjái þá ósk mína. Sjáum til hvernig skapið fer með þá fyrirætlan. Ég hélt ræðu á þarsíðasta kjörtímabili til stuðnings málinu eins og það leit út þá og var lagt fram af hv. 9. þm. Suðurk., Vilhjálmi Árnasyni. Ég flutti ræðu til stuðnings málinu og eftir það tók til máls þáverandi hv. þm. Össur Skarphéðinsson. Hann sagðist hafa verið hlynntur málinu áður en hann heyrði ræðu mína en honum hefði eiginlega snúist hugur. Ástæðan fyrir því, fullyrði ég, er að ég taldi og tel að áfengi sé dóp, ekkert minna dóp en annað sem er kallað dóp í samfélaginu. Ég veit ekki hvað það er sem á að vera svo heilagt við áfengi að það geri það einhvern veginn að minna fíkniefni eða minna vímuefni en segjum kókaín, hass eða amfetamín. Hvað er það nákvæmlega sem áfengi gerir ekki? Veldur það ekki líkamlegu tjóni? Veldur það ekki andlegu tjóni? Veldur það ekki fíkn? Veldur það ekki dauða? Hvað er það sem á að gera áfengi svona ótrúlega merkilegt?

Jú, það er menningarleg staða þess. Einvörðungu. Það eina sem aðskilur áfengi frá ólöglegum vímuefnum er menningarleg staða þess, söguleg staða þess, ekki áhrifin eða skaðsemin. Áhrif vímuefna eru almennt misjöfn. Kannabisefni hafa allt öðruvísi áhrif en amfetamín sem hefur allt önnur áhrif en heróín sem hefur allt öðruvísi áhrif en kókaín sem vissulega hefur allt öðruvísi áhrif en áfengi. Það er bara eðli flórunnar, efnafræðinnar. Fólk hefur lengi reynt að setja áfengi á einhvern annan stall og talað jafnvel um áfengi og vímuefni sem mér finnst stórfurðulegt vegna þess að þetta er vímuefni, það veldur vímu og veldur fíkn.

Þetta var nú ekki það sem ég ætlaði að bölsótast yfir, en mér finnst mikilvægt að minna þingheim á þetta út af samhenginu við frelsi sem ég ætla að fara aðeins út í á eftir. Ég ætla að spara það á þessum tímapunkti að útskýra nákvæmlega hvers vegna ég er hlynntur málinu efnislega. Mig langar meira að útskýra hvers vegna mér er sama um það. Mér er ekki alveg nákvæmlega sama um það en mér er í meginatriðum sama um það. Það er mér algerlega að meinalausu að þetta fari ekki í gegn og sömuleiðis algerlega að meinalausu að það fari í gegn. Ég myndi greiða með því atkvæði. Ég myndi ekki hafa fyrir því að skrifa undir það, vera meðflutningsmaður á því, en ég skal ýta á græna takkann, ég skal greiða atkvæði með því.

Mér finnst ágætt að byrja á rökum sem eru oft nefnd gegn þessu máli, sem eru þau að ÁTVR veiti svo góða þjónustu, sér í lagi á landsbyggðinni. Mér finnst í þeirri röksemd kristallast í raun hversu skrýtið þetta fyrirkomulag er. Hvernig í ósköpunum varð það að hlutverki ríkisins að tryggja gott úrval af dópi? Fyrirgefið, en á hvaða fundi var það ákveðið að það væri mikilvægt að á landsbyggðinni eða hvar sem er væri rosalega mikið úrval af þessu frábæra dópi sem heitir áfengi? Mér finnst það bara fáránleg pæling að ríkið beri þá skyldu eða hafi það hlutverk að tryggja úrval af einhverju vímuefni, hvort sem það er áfengi eða eitthvað annað. Ég skil ekki rökin. Ég hef heyrt þau oft og þau eru mikið rædd hérna en ég skil eiginlega minna og minna í þeim eftir því sem ég pæli meira í þeim. Venjulega dreg ég þá þá ályktun að um sé að ræða bull.

Ástæðan fyrir því að mér er svona í meginatriðum sama um þetta mál er að fólk fer að tala um það í samhengi við frelsi. Íslendingar upp til hópa telja sig ægilega frjálslynda og Ísland á að vera ægilega frjálslynt land. Ég er hjartanlega ósammála því. Ísland hefur aldrei verið frjálslynt land, aldrei nokkurn tíma. Skánar með aldrinum eins og margt annað. Við vorum að afnema bann við guðlasti 2015. Klám er enn þá bannað á Íslandi, ég veit að það er tabú umræðuefni, en það er nær einsdæmi í vestrænum lýðræðisríkjum svokölluðum. Það er umræða sem ég held reyndar að Alþingi Íslendinga sé ekki alveg nógu fullorðið til að taka almennilega, alla vega ekki án upphrópana og blammeringa. Við refsum fólki fyrir vörslu á vímuefnum. Refsum sjúku fólki fyrir að vera með vímuefni á sér þótt það sé algerlega augljóst að um einkaneyslu sé að ræða. Jafnvel þótt það sé algerlega ljóst að viðkomandi þurfi á því að halda til að upplifa ekki vítiskvalir af fráhvörfum á frjálslynda Íslandi. Það er sex ára fangelsisrammi við því að brugga bjór heima hjá sér til einkaneyslu. Eina vörnin er sú að þeim lögum er almennt ekki framfylgt.

Vel á minnst. Við Píratar lögðum fram frumvarp að mínu frumkvæði um að breyta þeirri dellu, vegna þeirra áhrifa sem það hefur á réttaröryggi borgaranna. Það þarf ekki nema einn lögreglustjóra einhvers staðar í vondu skapi sem ákveður að byrja að framfylgja þessum lögum, þá er réttaröryggi fjölda fólks komið í algjört uppnám vegna þess að við erum með lög sem skerða frelsi.

Viðskiptafrelsi er mikilvægt, ekki bara vegna þess að fólk vill græða peninga. Það er mikilvægt vegna þess að fjárhagsleg samskipti eru hluti af hinni mannlegu tilveru og góðu samfélagi. Það sem vekur alltaf ákveðinn pirring hjá mér í íslenskri umræðu um frelsi er hversu neðarlega einstaklingsfrelsið er á listanum. Viðskiptafrelsið er alltaf í efsta sæti. Þegar kemur að því að hætta að banna einstaklingum að gera eitthvað í sínu einkalífi þá hafa íslenskir stjórnmálamenn og reyndar Íslendingar almennt allt í einu engan sérstakan áhuga á frelsinu. Það snýst aðallega um það að geta selt eitthvað og grætt pening. Ekki það að geta hagað einkalífi sínu eftir eigin höfði án þess að eiga á hættu refsingu, mjög grimma refsingu í sumum tilfellum eins og við heimabruggi.

Það er það sem fer í taugarnar á við þetta mál. Ef við ætlum að auka einstaklingsfrelsi þá er þetta ekki málið til þess. Þá byrjum við á því að hætta að segja fólki hvað það megi heita. Byrjum þar. Ég auglýsi aftur eftir svari við því á hvaða fundi það var ákveðið, væntanlega hér inni einhvern tímann snemma á 20. öld eins og mörg önnur vitleysan. Nafnið okkar fáum við ekki einu sinni að hafa í friði sem fullorðið fólk. Ég er ekki að tala um börn, ég er að tala um fullorðið fólk sem tekur meðvitaða ákvörðun um að breyta eigin nafni. Nei, það má ekki vegna þess að öllum öðrum finnst að það eigi að vera einhvern veginn öðruvísi en einstaklingnum finnst sem ber nafnið sjálfur. Svo tölum við hér um frelsi, virðulegi forseti. Ég verð bara pirraður við að segja þessa hluti upphátt vegna þess að mér finnst þetta svo mikil hræsni.

Ég held að ég láti þetta duga í bili. Það er bara eitt eftir á dagskrá í þessari umræðu og það er spurningin um til hvaða nefndar málið eigi að fara. Klassísk umræða. Það hefur verið stungið upp á efnahags- og viðskiptanefnd af frummælanda málsins, fyrsta flutningsmanni, og velferðarnefnd af öðrum og mér finnst málefnaleg rök fyrir báðum nefndum. Það er til önnur nefnd sem fer með dómsmál. Hún heitir allsherjar- og menntamálanefnd. Ég legg til að málið fari til hennar, ekki formlega samt vegna þess að ég nenni eiginlega ekki í atkvæðagreiðslu um það. Um það er mér eiginlega líka sama.