149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[23:03]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að það hafi verið ein setning rétt til þessari ræðu. Það er sú setning að hér hefur aldrei verið neitt frjálslyndi eða frelsi. Ef menn halda að Ísland sé frjálslynt land þá er það mikill misskilningur. Það er rétt. Hins vegar er umræðan mjög langsótt um að eini munurinn á áfengi og síðan amfetamíni og kókaíni sé menningarlegur munur, hv. þingmaður. Það er mikill munur á þessum efnum þó að vissulega sé það alþekkt og hefur lengi verið alþekkt að langvarandi neysla áfengis geti valdið fíkn og menn fari illa út úr henni.

Menn sem taka kókaín og amfetamín getað einfaldlega dáið af einum skammti af því á einu kvöldi. Það er mikill munur á því. Þetta er eins og að leggja að jöfnu hættuleg lyf, sem eru lífshættuleg ef maður tekur þau ekki rétt, og svo magnyl. Það er bara ekki sambærilegt. Ég held að þegar menn eru komnir á þennan veg í umræðunni þá rugli það bara umræðuna, hv. þingmaður. Ég held að þetta snúist um eðlilega samkeppni á vöru á markaði, eðlilegt viðskiptafrelsi. Það er það sem skiptir máli. Það skiptir máli fyrir neytandann. Og ef menn halda að það muni ráða ferðinni í því hvort fleiri misnoti áfengi þá eru engin rök fyrir því. Ég vildi koma því að.