verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður endaði með að segja að þetta væri ekkert minna dóp en allt hitt. Jú, þetta er minna dóp (HHG: Að hvaða leyti?) af því að það er miklu hættuminna. (HHG: Nei.)— Jú, það er miklu hættuminna. Það er miklu meira notað en önnur vímuefni. Þetta er auðvitað vímuefni. Maður þarf að drekka talsvert mikið af því til að komast í vímu. Hins vegar getur, eins og dæmin sanna — og þá er ég ekki að tala um E-töflu vegna þess að E-tafla er sennilega skaðaminnst af öllum þessum efnum fyrir utan áfengi. Hún er ekki einu sinni ávanabindandi. Það vita auðvitað ekki allir. Það er nú kannski kosturinn við E-töfluna.
Allar þessar kenningar um að menn hafi dáið af einni töflu — ég held að það séu engar sannanir fyrir því. Ég held meira að segja að það sé rangt, hv. þingmaður, en það er önnur umræða. Ég er að segja að þetta er ekki bara menningartengt, maður þarf að hafa miklu meira fyrir því að komast í vímu. Hún er allt öðruvísi víma. Hún er skaðminni nema auðvitað getur maður skaðað sig mjög mikið með langvarandi drykkju. Að bera þetta saman með þessum hætti held ég að sé röng aðferð og skekki umræðuna og rugli fólk í henni. Ég held að við eigum ekki að tengja þetta saman. Við getum hugsanlega tengt þetta að einhverju leyti kannabisreykingum en ekki LSD, amfetamíni, kókaíni eða heróíni eða slíkum efnum eða morfíntengdum efnum. Það er bara allt annar handleggur.