149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[23:10]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég kann ekki að vera skýrari en að endurtaka hlutina, kannski tvisvar þrisvar. Þessi vímuefni eru öll mismunandi, eins og ég segi nú í þriðja skiptið. Hins vegar er hv. þingmaður kannski ekki alveg hreinskilinn við sjálfan sig í sambandi við skaðsemi af völdum áfengis. Það þarf ekkert langvarandi neyslu til að fara sér mjög alvarlega að voða með áfengi í fyrsta skiptið, af einum skammti, hvað svo sem menn kalla skammt. Ég meina, lítri af landa, er það ekki skammtur? Er það ekki stórhættulegu skammtur? Eða bara vodkapeli á nógu stuttum tíma, ef maður torgar einum vodkapela á hálftíma? Ég hef ekki spurt lækni nýlega en ég myndi halda að það færi verulega illa með heilsuna og geti vel hugsanlega drepið manneskju. Einn skammtur, svokallaður.

Sömuleiðis það að áfengi sé vægt vímuefni. Mig langar bara að biðja hv. þingmann — ég veit að ég þarf ekki að biðja hv. þingmann um þetta — að fara einhvern tímann út á pöbbinn og sjá hvernig fólk hagar sér af áfengi. Í alvörunni talað, helstu einkenni áfengisvímu eru skert dómgreind, betur þekkt sem heimska og hömluleysi. Þessir tveir mannkostir blandaðir saman eru eitt vímuefni. Það er áfengi. (BN: Það þarf ofneyslu til þess.) Það þarf ekki ofneyslu, virðulegi forseti.

Mér finnst þetta ótrúlegt. Menn finna á sér eftir einn eða tvo bjóra eða sterkari drykk. Það þarf ekki mikla neyslu, eins og það þurfi miklu minni neyslu af öðrum efnum. Ef menn myndu drekka kannabisefni eða drekka sveppi, eins og þeir gera reyndar, myndi ég halda að það væri mjög sambærilegt magn. Það fer eftir því hversu sterkt það er. Sem minnir mig á að mér finnst svolítið skrýtið að vera að tala um að eitt efni sé í eðli sínu sterkara en hitt. Það er alltaf spurning um hvernig það er blandað og hvernig þess er neytt.

Það sama gildir um áfengi og um LSD. Það er mælt í míkrógrömmum til að valda mjög mikilli vímu, sem er ekki heldur vanabindandi meðan ég man. Reyndar er algengara að fólk prófi LSD einu sinni og aldrei nokkurn tímann aftur vegna þess að það meikar ekki vímuna. LSD er mælt í míkrógrömmum. Ég get bara ítrekað aftur þar sem ég er nú búinn að segja þrisvar sinnum, öll þessi vímuefni eru misjöfn. Þau eru misjöfn eftir því hvernig þeirra er neytt og í hvaða magni að sjálfsögðu og augljóslega. Það sem ég er að segja er að það er ekkert sem við erum á móti við vímuefni sem á ekki líka við áfengi. Það er fíkn. Það er skaði á líffærum, það er andlegur skaði, geðveiki og dauði. Það eru staðreyndir, virðulegur forseti.