verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir bráðskemmtilega ræðu, sem var náttúrlega alls ekki um dagskrárefnið nema að mjög litlu leyti. Þess vegna ætla ég ekki að fara út í það að ræða mannanöfn eða guðlast eða klám heldur ætla ég að beina kastljósinu að þeim stutta kafla í ræðunni sem fjallaði um efni kvöldsins, þ.e. sölu áfengis í smásöluverslunum.
Hv. þingmaður sagði eitthvað á þá leið að honum væri í sjálfu sér slétt sama hvað yrði um þetta mál, hvort það yrði samþykkt eða fellt, en sjálfur sagðist hann myndu samþykkja það. Hann ætlar sem sagt að samþykkja mál sem drífur meiri kraft í sölu á efni sem veldur geðveiki, dauða og heilsufarstjóni. Hann er sem sagt alveg til í að samþykkja þetta mál þó að hann viti að þetta séu afleiðingarnar af mikilli áfengisneyslu.
Það hefur komið fram að síðan síðast þegar við gerðum tilraun með að breyta sölu áfengis á Íslandi, árið 1989, hefur áfengissala margfaldast, mælt í hreinum vínandalítra á mann á ári.
Allt það sem hv. þingmaður hélt hér fram, þ.e. geðveikin og dauðinn og sjúkdómarnir, hefur magnast á þessum tíma. Vísir menn hafa sagt að núna séum við Íslendingar í neyslu af hreinum vínanda á mann í kringum 8,5 lítra, eitthvað svoleiðis, sem væntanlega fer í 11 lítra á mann að þessu frumvarpi samþykktu. Með tilheyrandi heilsufarsvandamálum.
Þess vegna er ég svolítið hissa á því sem hv. þingmaður sagði um að hann myndi líklega samþykkja þetta í því ljósi að við horfum fram á það, að þessu máli samþykktu, að hér aukist áfengisneysla enn meira en hún hefur gert núna undanfarið með tilheyrandi heilsutjóni. Þess vegna langar mig til að þýfga hv. þingmann um hvort þetta sé virkilega það sem hann er að hugsa um.