verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegi forseti. Já, ég átta mig á því að þetta getur auðveldlega litið út sem mótsögn. Ég átti við sama vanda að stríða seinast þegar ég hélt mjög sambærilega ræðu, á þar síðasta kjörtímabili í það minnsta.
Það er rétt að neyslan hefur aukist en hún hefur minnkað hjá ungdómnum. Fyrir mér er lykillinn að þessu öllu saman sá að ég er á móti forræðishyggju. Ég er á móti því að lýðheilsa sé mælikvarði á velgengni samfélags.
Ég átta mig á því að þetta er frekar róttæk hugmynd í þessum sal. En við það eitt að taka heilsufarsupplýsingar og troða þeim saman í tölfræði finnst mér þær ekkert sjálfkrafa eitthvað mikilvægari gögn. Ég tek ýmsar ákvarðanir í mínu lífi sem varða heilsu mína sem eru ekkert endilega skynsamlegar út frá heilsufarssjónarmiðum. Það er bara mitt einkamál. Ég ræð því hvað ég set sem markmið í mínu lífi. Sumir vilja vera rosalega heilbrigðir, aðrir vilja vera íþróttafólk eða hvort tveggja. Sumir hafa engan sérstakan áhuga á því og velja einhverja aðra leið í lífi sínu og það er það frelsi sem ég aðhyllist svo mjög. Þess vegna er ég á móti forræðishyggju.
Ég lýsi því stundum þannig að ég vildi stundum að það væri hægt að skrá sig úr lýðheilsutölunum vegna þess að mig langar ekkert til að heilsufar mitt verði mat einhvers annars á því hvernig eigi að stjórna samfélaginu. Ég er ekki á því að það sé hlutverk lýðheilsusjónarmiða. Það er gott að þetta sé rannsakað. Það er gott að einhverjar jákvæðar, uppbyggilegar aðgerðir séu gerðar til að auka lýðheilsuna en því að stjórna samfélaginu eftir henni er ég bara ekki sammála. Ég bara vil ekki gera hlutina þannig.
Þá snýr þetta sem sagt að börnunum. Ástæðan fyrir því að ég myndi samþykkja þetta frumvarp er sú að það er komið til móts við þau, m.a. með auknum stuðningi við forvarnir. Við kunnum að ná árangri í því að draga úr vímuefnaneyslu unglinga. Það er aðalatriðið. Ef fólk byrjar þokkalega seint á lífsleiðinni, yfir tvítugu alla vega, að neyta vímuefna, hvort sem er áfengi eða annarra, dregur það svo svakalega úr líkunum á því að það verði vandræði. Þess vegna finnst mér það vera aðalatriðið. (Forseti hringir.) Ég trúi því að við getum náð báðum markmiðum á sama tíma. Með að auka viðskiptafrelsi og draga úr unglinganeyslu á sama tíma. Ég trúi því að það markmið sé raunhæft.