kjaramál.
Herra forseti. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að stjórnmál eigi að halda sig fjarri umræðu um kjaramál almennt og á sú afstaða það raunar sammerkt með hinu norræna vinnumarkaðslíkani, að reyna að hafa skýr skil á milli pólitíkur og vinnumarkaðsmála. En þegar kemur hins vegar að kjörum kvennastétta er dálítið áhugavert að fylgjast með áhugaleysi stjórnvalda í þeim efnum því hér erum við einfaldlega komin í mjög mikinn vanda.
Nýliðun í kennarastétt er algjörlega ábótavant eins og ítrekað hefur verið varað við, minnkandi ásókn í námið og stéttin að eldast mjög hröðum skrefum. Hvað skyldi valda? Það er alla vega nærtækt að horfa til launastigs stéttarinnar. Við náum ekki að manna heilbrigðiskerfið okkar með fullnægjandi hætti. Það er náttúrlega stórkostlega athyglisvert, svo ekki sé sterkar að orði kveðið, þegar við erum með jafn mikilvægt kerfi og heilbrigðiskerfið okkar þar sem jafn miklum fjármunum er varið, að við náum ekki að reka það með fullnægjandi hætti út af launastigi mikilvægustu stéttanna sem eru umönnunarstéttirnar innan kerfisins. Það er með ólíkindum að við höfum ekki tekið höndum saman um að ráða bót á þessu.
Þess vegna skil ég ekki hvers vegna ríkisstjórnin hefur ekki gert meira með þingsályktunartillögu Viðreisnar og fleiri um þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta. Það er augljóst að hér fara hagsmunir ríkis og launþegahreyfingarinnar algerlega saman. Það er líka alveg ljóst þegar við berum saman hinn almenna vinnumarkað og hinn opinbera að opinberi vinnumarkaðurinn er í mjög miklum vanda um það hvernig eigi að taka á erfiðri stöðu kvennastéttanna. Það verður ekki gert öðruvísi en með átaki á borð við það sem þar var lagt til að ráðast í. Ég vona svo sannarlega að ríkisstjórnin sýni meiri metnað í því máli en hún hefur gert hingað til og sæki þingmálið undan stólnum þar sem það er svo kirfilega geymt.