149. löggjafarþing — 102. fundur,  13. maí 2019.

kjaramál.

[16:33]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmönnum ágæta umræðu. Mig langar aðeins að nefna þann mönnunarvanda sem margir hv. þingmenn hafa nefnt, bæði í heilbrigðiskerfinu en ekki síður í skólakerfinu. Vissulega er sá vandi að einhverju leyti launatengdur, eins og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson sagði hér. En það eru samt fleiri atriði sem koma þar inn í. Hæstv. menntamálaráðherra hefur nú kynnt sérstakrar aðgerðir til að efla kennaramenntun, því að við höfum auðvitað séð að þar hefur nemendum fækkað verulega, á sama tíma og við sjáum líka ákveðið brotthvarf úr stéttinni.

Mönnunarvandinn í heilbrigðiskerfinu er auðvitað uppi og ég minni á þá bókun sem gerð var í tengslum við kjarasamninga BHM, sérstaklega um heilbrigðisstarfsfólk. En því miður er þetta er ekki séríslenskur vandi. Þessi vandi er til umræðu á norrænum vettvangi þar sem allar Norðurlandaþjóðir glíma við mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu, líka Þýskaland, Bretland. Við sjáum jafnframt sívaxandi álag á heilbrigðiskerfin, einfaldlega vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóða. Það vandamál er augljóslega ekki að fara en kallar á að við ræðum hluti eins og vinnutímann, sem ég gerði að umtalsefni í fyrri ræðu minni, sem við þurfum að horfa til, því að þetta snýst nefnilega ekki eingöngu um launatenginguna, þetta snýst líka um starfsaðstæður.

Þær aðgerðir sem kynntar voru í tengslum við lífskjarasamninga, sem menn geta talað niður, ganga í raun og veru út á að verið er að auðvelda tekjulágu fólki lífið, ekki síst ungum barnafjölskyldum. Vitna ég þá til fæðingarorlofs og barnabóta, þar sem vissulega er verið að breyta húsnæðisstuðningi með öðrum aðferðum, til að mynda með auknum stuðningi við fyrstu kaup á sama tíma og við styðjum við uppbyggingu félagslegs húsnæðiskerfis. Ég leyfi mér að fullyrða að allar þessar aðgerðir eru almennar. Þær munu gagnast, ekki bara þeim 90% sem hafa gert samninga á almennum vinnumarkaði, þær munu líka gagnast þeim sem eru á opinberum vinnumarkaði, örorkulífeyrisþegum sem margir hafa nefnt. Stóra markmið þeirra er að koma til móts við tekjulægri hópa. En að sjálfsögðu getum við síðan alltaf gert betur í þessu og þessari umræðu (Forseti hringir.) lýkur ekki. Það liggur alveg fyrir. Verkefnin eru alltaf ærin í þessu efni.