friðlýsingar.
Herra forseti. Ég spyr hæstv. umhverfisráðherra hver sé ástæða þess að tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár, sem var á þingmálaskrá ráðherra, hafi verið felld niður. Ég spyr einnig hversu mörg svæði Alþingi hafi samþykkt að friðlýsa á síðustu 20 árum, hvernig hafi gengið með þær friðlýsingar, þ.e. friðlýsingarferli hverra þeirra sé lokið og hver þeirra hafi nú verið friðlýst. Síðan spyr ég að lokum hver áform hæstv. ráðherra séu til að einfalda og greiða fyrir friðlýsingarferlinu.
Eins og kom fram í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í lok síðasta árs hefur, að því er virðist, gengið hægt að fylgja eftir samþykktum Alþingis síðustu ár um friðlýsingar ýmissa svæða. Það hlýtur að vera nokkuð alvarleg staða að vilja Alþingis hafi ekki verið fylgt eftir og því eðlilegt að við tökum málið upp og spyrjum hæstv. ráðherra um ástæður þess að ekki hafi gengið betur og hraðar en þetta.
Sannarlega er ánægjulegt, eins og hefur komið fram í fjölmiðlum, að ráðuneytið og Umhverfisstofnun virðast vera með eins konar sérstakt átaksverkefni í gangi, sem er hið besta mál. Ég geri ráð fyrir að hæstv. ráðherra muni koma inn á það í svari sínu á eftir. Það er hins vegar áhyggjuefni að Umhverfisstofnun hafi í raun, miðað við þær upplýsingar sem hafa komið fram opinberlega hingað til, hafi ekki sinnt skyldu sinni hingað til. Þarna eru gríðarlega mörg mikilvæg svæði undir. Ég vona að hæstv. ráðherra komi inn á það í svari sínu hver ástæða þess sé, hvort það hafi strandað á fjármunum eða hvort einhverjar aðrar ástæður liggi þar að baki.
Í því samhengi vekur athygli að framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár sem áður var á þingmálaskrá hafi verið felld niður.
Með það í huga hversu mikið liggur fyrir af tillögum um svæði sem ástæða væri til að setja á náttúruminjaskrá og hversu mikinn áhuga og metnað ég veit að hæstv. umhverfisráðherra hefur gagnvart umhverfismálum kemst ég ekki hjá því að velta fyrir mér hverjar mögulegar ástæður eru fyrir því að einmitt þetta mál var fellt niður og ég hlakka til að heyra svör hæstv. ráðherra um það.
Þá má reyndar bæta við að enn bólar ekkert á tillögu til þingsályktunar um vernd og orkunýtingu landsvæða sem samkvæmt þingmálaskrá var boðað að yrði lögð fram 31. mars síðastliðinn.
Til viðbótar þessari fyrirspurn, herra forseti, myndi ég gjarnan vilja heyra sjónarmið og fyrirætlanir hæstv. ráðherra um hvernig hann ætli að bregðast við. Telur hann að það fjármagn sem gert er ráð fyrir til verkefnisins í fjármálaáætlun dugi til að koma náttúruminjaskrá og friðlýsingum í rétt horf? Við vitum að það er mikilvægt að gera betur. Ætlar hæstv. ráðherra að gera það?