dagskrártillaga.
Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
„Undirritaður gerir tillögu um, með vísan til 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að dagskrá næsta fundar verði svohljóðandi:
1. Fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
2. Búvörulög.
3. Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs.
4. Verslun með áfengi og tóbak o.fl.
5. Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
6. Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.
7. Matvæli.
8. Almannatryggingar.
9. Barnaverndarlög.
10. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
11. Staða barna tíu árum eftir hrun.
12. Sjúkratryggingar.
13. Fræðsla um og meðferð við vefjagigt.
14. Hagsmunafulltrúi aldraðra.
Undirritaður óskar eftir því að tillaga þessi verði í samræmi við tilvitnaða grein þingskapa borin upp til atkvæða á Alþingi.“
Undir þetta bréf ritar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.