149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

tilkynning.

[17:13]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum mjög viðkvæmt mál sem snertir margar taugar samfélagsins. Það er óheppilegt að við skulum í ágreiningi, miklum ágreiningi, þurfa að afgreiða slíkt mál. Ég hef, og mæli það af viðræðum mínum við fjölda annarra þingmanna á undanförnum dögum, trú á því að menn geti náð saman um niðurstöðu í þessu máli.

Ég tel, virðulegur forseti, þess virði að á það verði látið reyna. Málinu var vísað til nefndar eftir 2. umr. og það hlaut ekki málefnalega meðhöndlun í nefndinni. Það var afgreitt þar út án þess að tekið væri tillit til þeirra gestabeiðna sem fram komu og hefðu kannski komið fram fleiri. Málinu var vísað til nefndarinnar í trausti þess að nefndin gæfi eitthvert svigrúm til umfjöllunar. (Forseti hringir.) Ég styð þessa tillögu á grundvelli þess að við reynum að ná víðtækari sátt um þetta mál.