149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

tilkynning.

[17:15]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er um margt tímabært, eins og komið hefur fram í umræðum hérna og er í sjálfu sér alveg ágætt að mörgu leyti. En að mínu viti hefur ekki orðið sú umræða um alla helstu þætti þess sem ég tel að æskilegt væri. Ég nefni sem dæmi 5. gr. Ég nefni sem dæmi yfirskrift frumvarpsins. Og það er fleira. Umræðan innan þings og utan hefur nánast öll verið undirlögð af 4. gr. frumvarpsins, sem lýtur að þeim tímamörkum sem óskilyrt heimild er til að framkvæma þungunarrof, eins og það er orðað í frumvarpinu.

Málið fékk nokkra umræðu við 2. umr. og var sent til hv. velferðarnefndar til frekari skoðanir. Einhverra hluta vegna stóð a.m.k. ég í þeirri trú að það hefði verið gert til að gefa nefndinni tækifæri til að fella 4. gr. frumvarpsins til þess vegar að gefa fleiri þingmönnum tækifæri til þess að styðja málið í heild sinni og mögulega skapa sátt utan þings líka um ákveðin sjónarmið. Ég veit svo sem ekkert hvort mögulega er hægt að skapa sátt, en það fyndist mér vera reynandi og í því ljósi styð ég þessa tillögu.