149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[17:26]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við göngum hér til atkvæðagreiðslu um sjálfsákvörðunarrétt kvenna. Það eru engar forsendur fyrir því að taka það úr sambandi við einhvern ákveðinn vikufjölda. Þungunarrof hefur verið framkvæmt hér fram að þessum tíma. Við erum einungis að velta fyrir okkur þessum sjálfsákvörðunarrétti.

Það eru komnar 22 vikur síðan við tókum þetta mál inn í nefnd. Við höfum sannarlega unnið af fullum heiðarleika að þessu máli eins og við höfum mögulega getað og kannski var það vanhugsað að hafa ekki opna fundi um málið til að sýna hvað við unnum mikið og heiðarlega í því. Við höfum ekki dregið lappirnar eða haldið aftur upplýsingum. Við höfum tekið inn öll sjónarmið og fjallað um þau.

Í okkar persónulega lífi göngum við til þeirrar atkvæðagreiðslu sem skiptir okkur máli út lífið. Þar skulum við greiða atkvæði fyrir hvert okkar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)