þungunarrof.
Herra forseti. Í svo viðkvæmu máli sem hér um ræðir má ekki telja eftir sér að velta við hverjum steini og skoða málið frá öllum hliðum. Fulltrúi Miðflokksins í velferðarnefnd óskaði eftir 2. umr. eftir að tiltekin atriði yrðu athuguð og að sérfróðir aðilar kæmu fyrir velferðarnefnd. Þeirri málefnalegu og sanngjörnu ósk var hafnað. Af hverju má ekki gaumgæfa málið nánar? Ekki er góður bragur á málsmeðferð af þessu tagi, herra forseti. Í umræðuna vantar ýmislegt, þar á meðal ítarlegri umræðu en raun ber vitni um lífsrétt ófæddra barna og réttindi fatlaðs fólks.