þungunarrof.
Virðulegur forseti. Þetta snýst um rétt kvenna, rétt þess lífs sem er byrjað og á engan hátt, segja allir, um rétt karlmanna. En ég tel að við eigum dálítinn rétt til a.m.k. að ræða þetta. Við verðum að átta okkur á því að sagt er að fóstur geti ekki lifað fyrir 22. viku. Það er ekki rétt. 6% fóstra lifa fyrir þann tíma. Tækninni fleygir alltaf fram og það eiga fleiri fóstur eftir að lifa af fyrir þann tíma. Prósentan á eftir að hækka vegna þess að viðkomandi fóstur er komið með öll líffæri. Það eina sem hefur hamlað því er lungnaþroski. Þannig að við eigum að gefa okkur góðan tíma. Við eigum líka að ræða rétt þess lífs sem er að fæðast. Okkur ber skylda til þess.