149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[17:58]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Þetta er erfitt mál sem verið er að ræða. Mig langar til að koma aðeins inn á þann málflutning sem hér hefur verið um frelsi einstaklingsins, um frelsi konunnar til að ráða yfir eigin líkama. Ég tek undir þau sjónarmið að engum manni detti í hug að skerða frelsi einstaklingsins eða rétt konunnar til að ráða yfir eigin líkama. En það er meira undir og ég tek undir það sjónarmið að það hefði þurft að ræða þetta meira og hleypa að Siðfræðistofnun Háskóla Íslands því að þetta varðar ýmislegt, t.d. önnur lög og reglugerðir sem við höfum í gildi þar sem verndun fósturs er látin ráða, til að mynda með jónandi geislun um borð í loftförum. Þar má venjulegt fólk fá eitt millisívert. Geislastéttir, til að mynda röntgentæknar, mega taka þrjú míkrósívert og flugstéttir sex — en það er fóstrið sem ræður.

Annað dæmi má taka af barnaverndarlögum eða eins og (Forseti hringir.) hv. þm. Brynjar Níelsson hefur komið inn á, að í refsirétti og í sifjarétti er kveðið á um rétt fósturs. Ég held að við ættum að ræða þetta betur.