þungunarrof.
Virðulegur forseti. Það eru auðvitað merki um mikla málefnaþurrð að þurfa að hlusta á persónulegar, allt að því persónulegar svívirðingar ákveðinna þingmanna í garð annarra þingmanna vegna mismunandi skoðana í þessu máli. Að væna menn um að bera ekki virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna þegar umræðan snýst um það hversu langt sá réttur á að ná, hversu lengi á hann að gilda. Hæstv. forsætisráðherra hefur gefið upp sína skoðun á því: Hann á að ná alla leið að fæðingu. Það er skoðun sem fólki er frjálst að hafa. Ég hef ekki þá skoðun. Hvenær á fóstrið rétt til lífs? Og flóttinn frá umræðunni birtist okkur síðan í því þegar fólk er farið að tala um þungunarrof í staðinn fyrir fóstureyðingu. Hver eru mörkin milli þungunarrofs og fóstureyðingar, eða frá frumuklasa, eins og hv. Samfylkingarþingmenn kjósa (Forseti hringir.) að kalla þetta? Hann er ansi myndarlegur frumuklasinn, formaður Samfylkingarinnar, sem situr þarna fyrir aftan mig í salnum.
(Forseti (SJS): Þingmönnum ber að gera grein fyrir sínu atkvæði en ekki nota tækifærið til árása á aðra þingmenn.)
Ég segi nei.