149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[18:38]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Það er alveg sama í hvaða orðabúning við færum afstöðu okkar í þessu máli. Fyrir mér snýst hún um þá einföldu spurningu um hvort ég virði sjálfsákvörðunarrétt kvenna eða ekki. Ég virði sjálfsákvörðunarrétt kvenna. Ég er stoltur yfir því að standa hér í dag og leggja mitt pínulitla lóð á þær vogarskálar að hann megi verða sem mestur og nái alla leið. Ákveðnir hv. þingmenn tala eins og það séu einhver takmörk á því — hann á að ná alla leið.

Ég segi já.