149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.

539. mál
[18:45]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Við erum að greiða atkvæði um þennan fríverslunarsamning og við vitum öll að mannréttindi eru gróflega brotin á Filippseyjum. Við vitum líka að það er óeining meðal mannréttindasamtaka, bæði þar og annars staðar, um fríverslunarsamning við landið.

Ég hef verulegar efasemdir um réttmæti þess að samþykkja þennan fríverslunarsamning meðan Duterte eða aðrir slíkir ráða ríkisvaldinu á Filippseyjum. Ég legg áherslu á að mannréttindamál og umræðan um þau verði höfð í fyrirrúmi varðandi fríverslunarsamninginn hvenær sem hann er ræddur eða notaður, en horfi einnig til þess tíma sem kemur að loknum völdum Dutertes og hans líka í landinu. Ég mun greiða atkvæði með þingsályktunartillögunni en með þessum fyrirvara.