fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Herra forseti. Eins og allir vita hefur ríkt hræðilegt ástand í stöðu mannréttindamála frá því að Duterte, forseti Filippseyja, var kjörinn forseti landsins. Minni hluti utanríkismálanefndar leggst eindregið gegn því að fríverslunarsamningur verði fullgiltur af hálfu íslenska þingsins við Filippseyjar við núverandi aðstæður í mannréttindamálum og telur einboðið að Ísland eigi að bíða með fullgildinguna þar til ástand í mannréttindamálum batni til muna.
Fordæmi eru fyrir því að Alþingi Íslendinga hafi ítrekað hafnað samþykkt á framlagningu þingsályktunartillögu um að fullgilda fríverslunarsamning vegna bágs ástands mannréttindamála í viðkomandi samningsríki. Það gerðist með fríverslunarsamninga EFTA við Kólumbíu, en þingsályktunartillaga um þá var lögð fram í fjórgang áður en hún hlaut samþykki Alþingis sem gerði það ekki fyrr en staða mannréttindamála hafi batnað verulega. Því segi ég nei við fullgildingu fríverslunarsamningsins núna og tel að Alþingi eigi að bíða þar til raunverulegar umbætur verða á mannréttindum og mannfrelsi íbúa Filippseyja.