fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Herra forseti. Ég myndi gjarnan vilja geta stutt þennan fríverslunarsamning en að svo stöddu er mannréttindaástandið í Filippseyjum með því móti að ég get ekki séð að það samræmist siðferði mínu að samþykkja hann. Allir verða að fá að njóta mannréttinda eins mikið og hægt er og í þessu tilfelli erum við ekki að gera Filippseyingum né sjálfum okkur neina greiða með því að styðja þetta. Ég hefði að sjálfsögðu stutt þetta eins og aðra samninga þegar á líður og ástandið lagast, en þingkosningarnar í Filippseyjum sem eru í dag virðast sýna að óbreytt ástand verður viðvarandi til einhverra ára hið minnsta. Ég verð því miður að segja nei.