fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Herra forseti. Það er auðvitað ekki auðvelt að svara því hvort eiga skuli samskipti við lönd þar sem við völd eru harðstjórar sem skeyta engu um mannréttindi. Ég trúi því hins vegar að eina leið mannkynsins til að ráðast að rótum stórra ógna, ófriðar, fátæktar, loftslagsmála, sé með náinni samvinnu. Ég held að þrátt fyrir allt sé betra að við eigum í samskiptum við önnur ríki og ég trúi því raunar að eina útflutningsvara Íslendinga þegar kemur að utanríkismálum sé rödd friðar, mannréttinda, jafnréttis og slíkra hluta. Þess vegna treysti ég því að stjórnvöld noti þá rödd sína og greiði atkvæði með þessu.