fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Herra forseti. Ég hef verið þeirrar skoðunar að við eigum að stuðla að friði og farsæld í heiminum með því að gera samninga og halda uppi samskiptum við þjóðir, þó að þær þjóðir séu ekki endilega lýðræðisþjóðir. Hitt er síðan að á öllum þessum árum hefur ekki verið gerð úttekt á því hvort þetta skili raunverulega árangri. Við Íslendingar höfum verið að fara þessa leið en við sjáum að öll þau samskipti og viðskipti sem við höfum í gegnum fríverslunarsamninga og fleira — ég er ekki lengur viss um að þetta skili því sem við erum að kalla eftir, m.a. auknu frelsi og lýðræði fyrir alla í heiminum, því það er lykillinn að velsæld, efnahagslegri sem félagslegri, okkar allra.
Hitt er annað mál að í nefndarálitinu er skýrt undirstrikað að lögð sé áhersla á að íslensk stjórnvöld haldi á lofti stöðu mannréttinda á Filippseyjum eins og þau hafa gert að undanförnu á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra, sem hefur gert vel á þeim vettvangi í að halda uppi þessum sjónarmiðum, að gera slíkt áfram. Á þeirri forsendu (Forseti hringir.) og m.a. með það í huga að við vonandi skoðum hvort rétt sé að taka þessi skref hverju sinni styð ég þetta mál.