fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Virðulegi forseti. Ég skil vel rökin, að okkur beri að beita fríverslun til að reyna að bæta ástand mannréttinda og lýðræðis í heiminum. Ég skil sjónarmiðið. En við erum núna að díla við ríki sem er stjórnað af manni sem heitir Duterte sem hvetur lögregluna til að taka fólk af lífi á götum úti án dóms og laga. Við erum að tala um algjöran vitfirring. Það er ekkert orðum aukið, það er ekkert dónalegt að segja það. Það er bara staðan sem blasir við.
Sú hugmynd að hann og hans kónar fari að bæta mannréttindastöðuna á Filippseyjum vegna þessa samnings þykir mér fráleit. Ég get ekki með góðri samvisku annað en greitt atkvæði gegn honum. Þegar ég les það sem kemur fram í formála samningsins um skuldbindingu til að styðja við lýðræði og réttarreglur finnst mér svolítið verið að gera lítið úr okkur, ef við ætlum að láta eins og það standi eitthvað til af hálfu yfirvalda Filippseyja að standa við þetta. Mér finnst það pínu móðgandi. Persónulega, ég ber nú virðingu fyrir annarra manna atkvæðum, get ég ekki (Forseti hringir.) annað en greitt atkvæði gegn þessu máli að svo stöddu.