fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Herra forseti. Ég tek að langflestu leyti bara heils hugar undir þau orð sem hv. þm. Þorgerður K. Gunnarsdóttir lét falla hér í pontu rétt áðan um mikilvægi frjálsra viðskipta milli þjóða og mikilvægi þess að við berum út boðskap mannréttinda og frelsis í þeim viðskiptum. Það sem mér finnst hins vegar grafa undan mannréttindum og trúverðugleika þeirra við þessa tillögu hér er sú að við vitum það — það er gefið fyrir fram — að það stendur ekki til að virða mannréttindaákvæðið í þessari tillögu. Ef ríkin sem við ætlum að eiga í viðskiptum við eru ekki einu sinni að reyna, hafa ekki einu sinni sýnt minnsta vilja til þess að þokast í átt að betra lýðræði og meiri mannréttindavernd heldur ganga bersýnilega og augljóslega í þveröfuga átt grefur það undan trúverðugleika, gildi mannréttinda og virðingu fyrir þeim að við kvittum undir það eins og hvert annað tómt skjal.