fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.
Virðulegi forseti. Ég held að óhætt sé að segja að engin þjóð hafi gengið harðar fram í að gagnrýna mannréttindabrot í Filippseyjum en Íslendingar og eftir því hefur verið tekið. Ég las það í erlendu pressunni fyrir um einu og hálfu ári að mannréttindasamtökin Human Rights Watch töldu að framganga Íslands í mannréttindaráðinu hefði haldið aftur af dauðasveitum Dutertes. En á sama tíma, virðulegi forseti, stundum við frjáls viðskipti við ýmis lönd og mörg lönd sem eru alls ekki á þeim stað í mannréttindamálum sem við viljum sjá. Ef við ætlum að breyta því erum við að breyta mjög mörgu. Þá er ég að vísa til viðskiptastefnunnar.
Það er nú þannig, virðulegi forseti, að m.a. við Íslendingar höfum fengið hugmyndir um margt sem við höfum sem betur fer framkvæmt hér í gegnum samskipti við aðrar þjóðir, gegnum viðskipti við aðrar þjóðir. Það er nákvæmlega sama á ferðinni hér. Ég er ánægður (Forseti hringir.) með að yfirgnæfandi meiri hluti styður þennan samning. En ég veit, virðulegi forseti, og ég treysti því að enginn hv. þingmaður skrifar hins vegar upp á þessi mannréttindabrot (Forseti hringir.) sem við svo sannarlega mótmælum og munum halda áfram að mótmæla.