barnaverndarlög.
Hæstv. forseti. Ég er hér með framsögu fyrir frumvarpi til laga um breytingu á barnaverndarlögum, sem varðar viðurlög og refsingar við tálmun og takmörkun á umgengni. Frumvarp þess efnis var lagt fram á 146. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu þá. Nú er það lagt fram að nýju með örlitlum breytingum. Hér er um að ræða viðbót við 98. gr. barnaverndarlaganna. Meginbreytingin er að hin nýja grein hljómar svo:
„Tálmi foreldri hinu foreldrinu eða öðrum sem eiga umgengnisrétt samkvæmt úrskurði, dómi, dómsátt foreldra eða samningi þeirra staðfestum af sýslumanni að neyta umgengnisréttar, eða takmarki hann, varðar það sektum eða fangelsi allt að fimm árum. Brot gegn ákvæði þessu sætir aðeins opinberri rannsókn að undangenginni kæru barnaverndar til lögreglu.“
Þar er kannski meginbreytingin frá fyrra frumvarpinu, auk þess sem brotið nær til beggja foreldra, þess sem hefur forsjá og þess sem hefur umgengni ef það foreldri takmarki eða tálmi það að barnið geti hitt foreldrið.
Það er svo sem enginn ágreiningur um að samkvæmt 1. gr. barnalaga og 7. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn rétt á að þekkja og umgangast báða foreldra sína. Það er réttur barnsins. Í 46. gr. barnalaga er sérstaklega tekið fram að barn eigi rétt á að umgangast með reglubundnum hætti það foreldra sinna sem það býr ekki hjá og þegar foreldrar búa ekki saman hvílir sú skylda á báðum að grípa til þeirra ráðstafana sem við verði komið til að tryggja að þessi réttur sé virtur.
Ástæðan fyrir því að lögð er svona mikil áhersla á rétt barnsins og skyldu foreldra í lögum og barnasáttmálanum er sú að það skiptir verulegu máli fyrir velferð barnsins. Það er tæplega ágreiningur um það hér í þingsal eða í samfélaginu almennt. Það er því vanræksla að svipta barnið rétti til að umgangast báða foreldra. Í 98. gr. barnaverndarlaga segir að þeir sem vanrækja barn andlega þannig að það stefni lífi eða heilsu þess í hættu skuli sæta refsingu. Rannsóknir sýna að barni, sem er svipt þeim möguleika að eiga samskipti við foreldri, getur orðið það mjög tilfinningalega og andlega þungbært til framtíðar, ekki síst ef það hefur alist upp í samvistum við það foreldri í einhvern tíma. Af þeim sökum er mikilvægt að vanræksla gagnvart barni, sem felst í tálmunum eða takmörkunum á umgengni, fái sömu meðhöndlun barnaverndaryfirvalda og annars konar vanræksla og/eða ofbeldi gagnvart barni. Það er um þetta sem málið fjallar.
Þótt löggjafinn hafi með nokkuð skýrum hætti litið svo á að réttur barns til umgengni við báða foreldra skipti miklu máli fyrir velferð þess hafa gildandi ákvæði í lögum ekki tryggt nægjanlega rétt barnsins. Því er frumvarp af þessu tagi mjög nauðsynlegt. Því er lagt til að bætt verði við 98. gr. barnaverndarlaga sérstöku ákvæði, sem ég rakti hér áðan, sem taki af öll tvímæli um að slík tálmun eða takmörkun á umgengni sé ólíðandi út frá velferð barns og sé því refsiverð. Með viðurlögum er undirstrikað það sjónarmið að tálmun eða takmörkun á umgengni er brot á skyldum foreldris. Orðalag ákvæðisins er sambærilegt því sem notað er í ákvæðum barnalaga um tálmanir á umgengni, þó með þeirri breytingu að ekki er miðað við heimilisfesti barns, og má því byggja á skilgreiningu í athugasemdum við frumvarp það sem lögfesti ákvæði barnalaga um dagsektir og aðför vegna tálmunar. Með tálmun er vísað til þess atferlis foreldris að koma í veg fyrir að barn njóti umgengnisréttar við hitt foreldrið, t.d. með því að halda barni í læstri íbúð þegar á að sækja það, fara á brott með barn af heimili þess eða öðrum stað þar sem umgengni á að hefjast eða ljúka, koma ekki með barn á þann stað þar sem afhenda á barnið eða valda því með öðrum hætti að úrskurður verður ekki framkvæmdur. Af framangreindri skilgreiningu má ráða að það sé í raun tálmun eða takmörkun á umgengni þegar foreldri veldur því með einum eða öðrum hætti að úrskurður, dómur, dómsátt eða samningur aðila verður ekki framkvæmdur.
Hér er mikilvægt að hafa í huga að þetta nær eingöngu til þess að fyrir liggi einhver niðurstaða, annaðhvort dómstóla, stjórnvalda eða foreldranna sjálfra, um að ekkert sé varhugavert við umgengni beggja foreldra.
Til að koma til móts við þá gagnrýni sem frumvarpið fékk á sínum tíma á 146. löggjafarþingi er komið inn í ákvæðið núna að kæra til lögreglu fari aðeins í gegnum barnaverndaryfirvöld. Hafi eitthvað komið upp, eitthvað nýtt sem ekki var þegar úrskurður eða dómur féll eða samningur gerður eða eitthvað slíkt, þá sé það í höndum barnaverndaryfirvalda að meta það. Þetta er því lykilatriði í að ná einhverri sátt um þetta og svo auðvitað að það gildi á báða vegu, hvort sem er til forsjárforeldris eða umgengnisforeldris eða þegar sameiginleg forsjá er, að það sé ekki bara ákvörðun annars foreldrisins að segja: Ja, nú verður ekki umgengni af því að ég met það sjálfur eða sjálf að það sé ekki barninu fyrir bestu. Það gerist ekki þannig og hvergi í siðmenntuðum löndum að það sé bara einhver ákvörðun og þá raunverulega með yfirgangi og frekju.
Hér er því verið að gera skýrt í lögum að þetta er brot gegn barni, sem ég held að enginn neiti. Og við brotum þar sem heilsu barns er stefnt í voða sé rétt að beita viðurlögum og sambærilegum viðurlögum og er við brotum sem geta valdið eða stofnað heilsu barns í voða.
Þetta er lykilatriði í frumvarpinu. Mér kæmi það mjög á óvart að frumvarpið eins og það er núna sæti hér einhverri andstöðu, því að ég held að öllum sé ljóst sem hafa unnið í þessum málum og þekkja þau að einhverju marki, að fjölmörg vandamál eru þar sem ekki er farið að niðurstöðu dómstóla, ekki að úrskurðum stjórnvalda eða samningum milli aðila og menn hafa komist upp með það mánuðum, árum og jafnvel áratugum saman að virða að vettugi þennan rétt barna. Við það verður ekki unað. Samfélagið hefur auðvitað breyst. Það er orðið miklu algengara en áður var að foreldrar slíti samvistum. Fleiri svona mál koma þar af leiðandi upp þar sem annað foreldrið kemst upp með án nokkurra vandkvæða að því er virðist að tálma umgengni eða takmarka.
Í nefndarálitinu kemur fram að frá árinu 2007 til 2016 hafi verið fjölmörg mál af þessu tagi um kröfur um beitingu dagsekta, sem greinilega hafa aldrei virkað, og fjölmargir úrskurðir upp kveðnir. Við erum að tala um 550 kröfur um dagsektir. Það eru örugglega miklu fleiri tálmunarmál en þessi 550, því að ekki krefjast endilega allir dagsekta, sjá kannski ekki hagsmuni mikla fólgna í því, hvorki fyrir barnið né aðila.
Ég og aðrir flutningsmenn teljum þetta mikilvægt framfaraskref til að tryggja þennan rétt barnsins, tryggja það að barn verði ekki beitt þessu ofbeldi frekar en öðru ofbeldi og hér sé því líka eðlileg viðbót við 98. gr. barnaverndarlaganna þar sem tekin eru af öll tvímæli um brotin og viðurlög við þeim.