149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

barnaverndarlög.

126. mál
[20:47]
Horfa

Flm. (Brynjar Níelsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er misskilningur hjá hv. þingmanni að þetta snúist um umgengnisdeilur. Það segir sérstaklega: Það er búið að leysa úr þeim. Það er búið að leysa úr forsjá og umgengni.

Þetta er því ekki spurning um að barnaverndaryfirvöld fari inn í umgengnisdeilur. Menn fara einfaldlega ekki að eftir niðurstöðu sem er fengin. Það kunna að vera nýjar forsendur, breyttar aðstæður frá því að úrskurður var kveðinn upp, dómur var kveðinn upp eða samningur gerður. Þess vegna er það barnaverndaryfirvalda að meta það. Ef engar nýjar forsendur eru fyrir hendi, t.d. ofbeldi eða eitthvað slíkt, ber barnaverndaryfirvöldum að kæra. Þá er það orðið brot. Þetta er ekki flóknara en það, hv. þingmaður.

Það er alveg rétt að þær aðstæður geta komið upp að umgengnisforeldrið telji að forsjárforeldri beiti einhvers konar ofbeldi og neiti þá að skila barninu. Þess vegna er sú breyting. Hún er ekki í andstöðu við eitt né neitt. Umgengnisforeldri skilar ekki barninu til forsjárforeldris vegna aðstæðna sem það telur réttlæta það. Þá er auðvitað rétt að barnaverndaryfirvöld athugi, alveg eins og á hinn veginn, hvort slíkar ásakanir eigi við rök að styðjast eða hvort ástæða sé til að ætla það.

Þetta er bara brot eins og svo mörg önnur brot, eins og ofbeldisbrot. Við förum eins með þetta mál og öll önnur brot gegn börnum. Ég skil ekki vandkvæðin við það. Mér eru þau óskiljanleg, hv. þingmaður.