barnaverndarlög.
Frú forseti. Ég er ansi hrædd um að þingmaðurinn hafi haldið að sá þingmaður sem hér stendur hafa haldið allt annað og flutt allt aðra ræðu en hún gerði. Það er mjög mikill misskilningur í svari hv. þm. Brynjars Níelssonar. Það er ekki hægt að tala um tálmun ef það liggur engin úrskurður, dómur eða samningur fyrir. Þá er það ekki tálmun, af því að það er enginn samningur. Þá er alveg sama hvert þú ferð með slíkt mál, þú þarft að byrja á því að reyna að ná umgengnissamningi. Annars er það ekki tálmun. Það ætti lögmaðurinn að vita, hv. þingmaður. Þetta er alger útúrsnúningur.
Í öðru lagi er það ekki flóknara en svo að barnavernd lítur svo á að þegar er ágreiningur um að afhenda barn sé það umgengniságreiningur. Það er þess vegna sem barnavernd hefur ekki viljað fara inn í málin. Það túlkar barnavernd. Það hefur meira að segja komið bréf frá Barnaverndarstofu til barnaverndarnefnda um að vera ekki að skipta sér af svona málum.
Ég er fullkomlega sammála því að þegar foreldri, hvort sem um er að ræða lögheimilisforeldri eða umgengnisforeldri, meinar barni að hitta hitt foreldri sitt, án nokkurrar ástæðu, sé það í sjálfu sér ofbeldi. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um það.
Ég lít hins vegar á framkvæmdina, hvernig þetta er í framkvæmd. Hvernig sér þingmaðurinn fyrir sér að barnaverndarnefnd sem neitar að koma að málum eigi að fara í að kæra þetta til lögreglu, þegar barnavernd neitar að koma að slíkum málum? Ég er bara að benda á að það eru hlutir í frumvarpinu sem ganga ekki upp í praxís.
Ég vil skora á hv. þingmann að koma með mér í þann leiðangur að reyna að laga (Forseti hringir.) kerfið, laga allt kerfið, frá sýslumanni yfir í barnavernd og allt þetta sem ég hef svo oft talað um.