149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

barnaverndarlög.

126. mál
[20:52]
Horfa

Flm. (Brynjar Níelsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að við séum að tala um sitt hvort málið. Að barnavernd fari ekki inn í umgengnisdeilur — þetta eru ekki umgengnisdeilur. Þú getur búið það til … (Gripið fram í.) Þegar kemur dómsniðurstaða, að kalla það einhverjar deilur af því að annar aðilinn ætlar ekki að efna dóminn — það eru engar deilur, það er ofbeldi.

Hér er verið að leggja þá skyldu á barnaverndaryfirvöld að ef menn brjóta þessi ákvæði, og það er sérstaklega skilgreint hvað tálmun sé og takmörkun á umgengni, þá segir barnavernd ekki: Við tökum ekki þátt í þessu. (HVH: Hún gerir það.)Það gengur ekki. Getur barnavernd bara sagt þegar meiri háttar líkamsmeiðingar eða ofbeldisbrot koma til hennar: Nei, við tökum ekki þátt í þessu? (HVH: Það er þannig …)Það er okkur óviðkomandi? Það gerist ekki þannig, enda ber barnavernd lögum samkvæmt að gæta hagsmuna barna og tryggja þá. Ef hún gerir það ekki þarf að gera mikið í þeim málum. Það má vel vera að það þurfi, ég veit það ekki.

En þetta er alveg skýrt í ákvæðinu og flækist ekki fyrir mér, þótt það kunni hugsanlega að flækjast fyrir einhverjum barnaverndarfulltrúum. En það er þá mjög sérstakt. Það er mjög sérstakt ef embættismenn segja: Ég tek ekki þátt í svona málum. Þá skulum við fara saman, hv. þingmaður, í verulegan uppskurð og endurskoðun á því öllu saman.

En það hvarflar ekki að mér eina sekúndu að embættismenn vinni þannig. Ég trúi því ekki. Þó hef ég séð ýmislegt, þannig að þetta er kannski ekki algjörlega fráleitt hjá hv. þingmanninum.

Fyrir mér er þetta mjög einfalt mál. Ef það er tálmun þarf að grípa inn í. Ef það verður þannig (Forseti hringir.) eftir þetta að barnaverndarnefnd segir: Nei, ég kem ekki nálægt þessu — þá þurfum að breyta því aftur.